Thad helgaðir tónleikar 15. maí 2010 12:00 Tónlist Thad Jones er helguð dagskrá á mánudagskvöld í Leikhúskjallaranum.
Stórsveit Reykjavíkur heldur tónleika í Þjóleikhúskjallaranum á mánudagskvöld kl. 21. Á efnisskrá verður öll tónlistin af einni frægustu stórsveitaplötu allra tíma; Consummation með Stórsveit Thad Jones/Mel Lewis frá 1970, en hluti hennar var einmitt hljóðritaður í maímánuði það ár, fyrir réttum fjörutíu árum. Tónlistin er öll eftir Thad Jones (1923-86), einn helsta meistara big band-tónlistar síðustu áratuga. Auk laganna átta af Consummation verða flutt nokkur lykilverk af efnisskrá stórsveitar Thad Jones og Mel Lewis. Stjórnandi á þessum tónleikum verður Sigurður Flosason. Thad Jones var trompetleikari með hljómsveit Count Basie á árunum 1954-63 og skólaðist þar í einu stærsta og besta bandi sinnar tíðar. Ásamt trommuleikaranum Mel Lewis stofnaði hann árið 1965 The Thad Jones/Mel Lewis Jazz Orchestra, en sú hljómsveit leikur enn á hinum þekkta djassklúbbi The Village Vanguard í New York. Jones yfirgaf sveitina árið 1978 og flutti til Danmerkur. Þar stjórnaði hann m.a. Stórsveit danska ríkisútvarpsins og stofnaði síðar Eclipse-stórsveitina. Eftir lát Counts Basie árið 1984 flutti Thad Jones aftur til Bandaríkjanna, tók við stjórn þeirrar sveitar og starfaði með henni til dauðadags árið 1986. Thad Jones er almennt talinn í hópi mikilvægustu tónskálda stórsveitasögunnar og hafa tónsmíðar hans og útsetningar haft gríðarleg áhrif. Kraftmikil og áleitin tónlist hans hefur oft skapað magnaða stemningu, ekki síst á klúbbum.- pbb
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Lífið samstarf Í festival gír með Icewear Lífið samstarf Bylgjulestin brunar á Flúðir Lífið samstarf Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira