Bach og Pärt 15. maí 2010 09:30 tónlist Arvo Pärt tónskáld en Berlínar messa hans er flutt á morgun í langholtskirkju mynd fréttablaðið
Sunnudaginn 16. maí kl. 20 flytja Kór og Kammersveit Langholtskirkju Berliner Messe eftir Arvo Pärt og Kantötu nr. 4, Christ lag in Todesbanden (Í dauðans böndum Drottinn lá), eftir J. S. Bach. Tónskáldið Arvo Pärt (1935- ) er eitt virtasta tónskáld samtímans. Stíll hans er einstakur og þykir hafa yfir sér ójarðneskan blæ. Messan var samin 1993, upprunalega fyrir einsöngvara eða kór og orgel og hefur í því formi verið flutt hérlendis. Árið 2002 endurskoðaði tónskáldið messuna og útsetti fyrir strengjasveit og er þetta í fyrsta skipti að hún er flutt þannig hér. Frá 1976 hefur Pärt þróað með sér stíl sem á sér enga hliðstæðu. Hann nefnir þessa tækni tintinnabuli (úr latínu: „litlar bjöllur"). Hann notar yfirtóna sem líkjast klukkuhlómi sem hverfast um miðlæga tóntegund. Með þessu nær tónlistin sterkum trúarlegum áhrifum. Kantata Bachs nr. 4 er samin fyrir páskadag og er að öllum líkindum ein af fyrstu kantötum hans, að öllum líkindum samin um 1707. Hún er hrein kóralkantata í sjö þáttum. Hún hefst á sinfóníu og síðan notar hann sjö vers úr sálminum Í dauðans böndum Drottinn lá og útfærir fyrir fjórraddaðan kór, sópran/alt, tenór, bassa og sópran/tenór. Á tónleikunum syngur kórinn alla þættina en stundum eru einsöngvarar látnir syngja aríur og dúetta. Konsertmeistari er Ingrid Karlsdóttir, stjórnandi Jón Stefánsson.- pbb
Mest lesið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Tónlist Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Bieber gefur út óvænta plötu Lífið Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð Tíska og hönnun Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Lífið Borgin býður í tívolíveislu Tónlist Ragga Holm og Elma trúlofaðar Lífið Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Áskorun Fleiri fréttir Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Sjá meira