Agent Fresco rænd á hollenskri hátíð 19. janúar 2010 03:00 agent fresco Hljómsveitin Agent Fresco var rænd á tónlistarhátíðinni Eurosonic sem var haldin í Hollandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „
Kvöldið var búið að vera æðislegt. Við vorum búnir að vera á frábærum tónleikum með FM Belfast og þá gerist þetta,“ segir Arnór Dan Arnarson, söngvari hljómsveitarinnar Agent Fresco. Hátt í fimmtíu þúsund krónum var stolið frá Arnóri Dan og félögum hans í Agent Fresco á tónlistarhátíðinni Eurosonic sem var haldin í Hollandi um helgina. Peningunum, sem tapaðist, höfðu þeir félagar safnað með sölu á hljómplötum og stuttermabolum meðan á hátíðinni stóð og því um sérlega leiðinlegt atvik að ræða. „Þetta gerðist bara fyrir framan okkur á tónleikastaðnum. Hann tók veskið og gaf það áfram og hljóp svo í burtu. Við vorum ekki að fara að elta svona náunga út í eitthvert skuggasund,“ segir Arnór Dan. „Strax klukkutíma eftir þetta var ég hættur að vera brjálaður. Þetta eru bara peningar.“ Í síðasta mánuði var hljómsveitin Ultra Mega Technobandið Stefán einnig rænd á tónlistarhátíð í Hollandi og svo virðist því sem íslenskir tónlistarmenn séu berskjaldaðari en aðrir þar í landi. Hvort Icesave-málið eigi þar einhvern hlut að máli skal ósagt látið. Annars segist Arnór aðeins hafa fengið eina spurningu um Icesave meðan á dvöl hans stóð, sem kom honum nokkuð á óvart. „Við vorum búnir að lesa ógeðslega mikið um Icesave-málið og orðnir mjög góðir í að svara því. Við erum brjálaðir út af málinu og vorum alveg til í að tala um það en við notum þetta bara heima. Núna vitum við klárlega hvað við erum að fara að kjósa.“ - fb
Mest lesið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira