Lögbann á auglýsingar Kredia 16. febrúar 2010 06:00 búbbi guggu eins og hannes? Saga Film hefur fengið lögbann á auglýsingar Kredia sem sýna þennan karakter, Búbba Guggu, slá lán. „
Þeir eru að nota karakter sem þeir hafa ekkert leyfi til að nota,“ segir Kjartan Þór Þórðarson, framkvæmdastjóri Saga Film, um auglýsingar smálánafyrirtækisins Kredia. Saga Film, framleiðandi Nætur-, Dag- og Fangavaktarinnar, fékk í gær lögbann á nýlegar auglýsingar Kredia. Forsvarsmenn framleiðslufyrirtækisins telja að karakterinn í auglýsingunum sé hinn seinheppni Hannes, pabbi Ólafs Ragnars úr Vaktaseríunum þremur. Kjartan segir að honum hafi brugðið þegar hann sá auglýsingar Kredia, enda sé karakterinn í auglýsingunni alveg eins og Hannes. „Það verður höfðað skaðabótamál. Auglýsingastofan á að vita að svona er ekki eðlilegt að vinna hlutina,“ segir Kjartan, Spurður hversu háa upphæð farið verður fram á segir hann að það sé óvíst. Júlíus Brjánsson túlkar karakterinn, sem kallast Búbbi Guggi, í auglýsingunni. Hann segist hafa verið beðinn um að leika svarthærðan, lágvaxinn mann. „Ég gerði það og þeir voru ákaflega ánægðir með þennan lágvaxna, svarthærða mann. Að öðru leyti veit ég ekki um hvað er verið að rífast.“ Líturðu ekki svo á að þú hafir verið að túlka Hannes? „Ef Hannes er líka lágvaxinn og svarthærður. Ég get ekki borið ábyrgð á því hvaða hugrenningar vakna við það.“ Valgeir Magnússon, framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, sem framleiddi auglýsinguna vísar því á bug að ætlunin hafi verið að herma eftir Hannesi. „Karakterinn heitir Búbbi Guggu,“ segir hann. „Júlíus hefur oft leikið svona karaktera. Hann lék karakter í þáttaröð sem hét Fastir liðir eins og venjulega sem hét Indriði. Hann hafði þessi karaktereinkenni. Hann hafði líka sömu einkenni þegar hann lék manninn hennar Bibbu á Brávallagötunni.“ - afb
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Fleiri fréttir Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Sjá meira