Stikla Harðskafa slær í gegn 23. september 2010 06:00 Mynd af leikaranum sem fer með hlutverk Erlends. Stiklan er gerð af eistneskum leikstjóra.
Það eru ekki bara íslensk forlög sem leggja sig öll fram við að kynna bækur sínar. Bókaforlagið Random House réðst til að mynda í gerð mjög metnaðarfullrar stuttmyndar til að kynna ensku útgáfuna af Harðskafa, eða Hypothermia eins og hún heitir upp á ensku. Eistneski leikstjórinn Tanel Toom var fenginn til að leikstýra myndinni sem er auðvitað öll á ensku. Stiklan hefur þegar náð mikilli hylli og mun keppa um titilinn Besta bókamyndbandið árið 2010 sem Random House, bókakeðjan Foyles, fagtímaritið Bookseller og The National Film and Television School í London standa að. Stiklan fyrir Harðskafa keppir meðal annars við stiklu fyrir nýjustu verk James Ellroy og Jens Nesbø. Netkosningin stendur yfir á heimasíðu Foyle. til 15. október. Athygli vekur að Erlendur Sveinsson í bókastiklunni er mun eldri en til að mynda Ingvar E. Sigurðsson sem mörgum fannst fullungur í hlutverkið í frægri mynd Baltasars Kormáks, Mýrinni. Það kom þó ekki að sök því Mýrin er ein aðsóknarmesta kvikmynd Íslandssögunnar. Hypothermia, eða Harðskafi, hefur raunar fengið mikla umfjöllun í bæði enskum og bandarískum fjölmiðlum en New York Times gaf henni meðal annars mjög góða dóma nýverið. -fgg Hægt er að horfa á stiklurnar á síðu verðlaunanna á YouTube og einnig kjósa á heimasíðu Foyle.
Mest lesið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Sigga Ózk keppir í Ungfrú Íslandi Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Tíska og hönnun Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Óbilandi trú á eigin ágæti Gagnrýni Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Lífið Fleiri fréttir Sigga Ózk keppir í Ungfrú Íslandi Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Catherine O'Hara er látin Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa „Ég er femínisti“ Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Djammaði með feðgunum Kára og Agli Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Sjá meira