Lífið

SkyReports sigurvegari

skyreports Hljómsveitin SkyReports sigraði á tónlistarhátíðinni Rokkstokk 2010.
skyreports Hljómsveitin SkyReports sigraði á tónlistarhátíðinni Rokkstokk 2010.

Rokksveitin SkyReports sigraði á tónlistarhátíðinni Rokkstokk 2010 sem haldin var í Frumleikhúsinu í Reykjanesbæ um síðustu helgi. Keanu lenti í öðru sæti og Reason to Believe var valin besta hljómsveitin af áhorfendum.

Meðlimir SkyReports eru gítarleikarinn og söngvarinn Brynjar Freyr Níelsson, trommuleikarinn Ívar Marteinn Kristjánsson og bassaleikarinn og söngvarinn Davíð Þór Sveinsson. Þeir eru allir frá Reykjanesbæ. SamSuð, samtök félagsmiðstöðva á Suðurnesjum, stóðu fyrir Rokkstokki og var þetta í fyrsta sinn síðan 1999 sem keppnin var haldin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.