Fer frítt í tónleikaferð til Kína, Taívan og Hong Kong 23. febrúar 2010 04:30 Ólafur og hljómsveit fá allt greitt undir sig í ferðalaginu til Asíu, en þau koma við í Kína, Hong Kong og Taívan. fréttablaðið/Valli
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds er á leiðinni til Asíu í mars. Hann borgar ekki krónu fyrir ferðina, þar sem hann vann þúsund hljómsveitir og listamenn í keppni á vefsíðunni Sonicbids.com. „Ástæðan fyrir því að ég var ekki búinn að fara til Kína var vegna þess að það er svo ógeðslega dýrt,“ segir tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds. Ólafur er á leiðinni í tónleikaferðalag til Kína, Taívan og Hong Kong í boði vefsíðunnar Sonicbids.com og kynningarfyrirtækisins Planetary Group. Fyrirtækin útvega og greiða fyrir atvinnuleyfi, flug, hótel, uppihald, auglýsingaherferð og starfsfólk ferðalagsins og Ólafur tekur fjögurra manna hljómsveit með út. Yfir þúsund hljómsveitir og listamenn sóttu um pakkann á vefsíðu Sonic Bids og Ólafur stóð einn uppi sem sigurvegari. Ólafur hlakkar mikið til ferðalagsins sem hefst í borginni Taípei í Taívan 24. mars. Þaðan heldur hópurinn til Hong Kong og loks til Kína þar sem hann kemur fram á fimm tónleikum í Sjanghæ, Wuhan, Quingda, Peking og Tianjin. Spurður út í salina sem hann kemur fram í segir hann flesta vera stóra og flotta. „Þetta eru yfir þúsund manna salir – aðaltónleikastaðirnir í þessum borgum,“ segir hann. Þetta verður í fyrsta skipti sem Ólafur kemur til Kína. Hann komst reyndar nálægt því árið 2008, en þá gripu kínversk stjórnvöld í taumana. „Þá var hátíð í Kína sem borgaði undir okkur,“ rifjar hann upp. „Svo sagði Björk „Free Tibet“ og þá voru allar tónlistarhátíðir bannaðar í Kína og við fengum ekki að fara. Ég er ekki bókaður á hátíðir núna, þannig að ég er öruggur.“ Ferðin ætti þó að auðvelda Ólafi að heimsækja Kína í framtíðinni, en hann vonast til að komast í samband við fólk sem getur greitt götu hans. Í kjölfarið á því að tilkynnt var um komu Ólafs til Kína ruku lög hans upp vinsældalistann á vefsíðunni Douban.com, sem er ein vinsælasta vefsíðan í Kína með fleiri en 10 milljónir skráða notendur. Ólafur situr nú í efsta sæti yfir vinsælustu listamennina á síðunni og fjölmargir notendur hafa tjáð sig um ágæti tónlistarinnar og meðal annar líkt henni við tóna Sigur Rósar. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Sjá meira