Lífið

Kristinn syngur með Frostrósum

Kristinn Sigmundsson óperusöngvari syngur á fyrstu klassísku tónleikum Frostrósa.
Kristinn Sigmundsson óperusöngvari syngur á fyrstu klassísku tónleikum Frostrósa.
Kristinn Sigmundsson óperusöngvari syngur á fyrstu klassísku tónleikum Frostrósa, sem haldnir verða í Háskólabíó 19. desember næstkomandi.

Klassísku tónleikarnir eru ný viðbót við jólatónleika Frostrósa, sem hafa átt miklum vinsældum að fagna undanfarin ár. Að þessu sinni verður boðið upp á tónleika á tólf stöðum vítt og breitt um landið, en auk þeirra verður nú í fyrsta skipti boðið upp á eina klassíska tónleika í lok tónleikaraðarinnar, rétt áður en jólahátíðin gengur í garð, þar sem Kristinn Sigmundsson mun syngja, ásamt öðrum óperusöngvurum.

Frostrósir Klassík verður frábrugðin hinum hefðbundnu Frostrósatónleikum því um er að ræða hátíðartónleika þar sem margir af fremstu einsöngvurum landsins syngja sígilda sálma og helgilög eftir íslenska og erlenda höfunda. Tveir fremstu tenórar landsins, þeir Jóhann Friðgeir og Garðar Thór Cortes koma fram, ásamt sópransöngkonunum Dísellu Lárusdóttur og Grétu Hergils auk Kristins. Klassískur armur Stórhljómsveitar Frostrósa, leikur undir stjórn Árna Harðarsonar. Einnig syngja á tónleikunum félagar úr Karlakór Fóstbræðra, Óperukórinn og stúlkur úr Stúlknakór Reykjavíkur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.