Lífið

Stafrænn Hákon: þrjár stjörnur

Sanitas er áttunda plata Stafræns Hákons í fullri lengd.
Sanitas er áttunda plata Stafræns Hákons í fullri lengd.
Eitt skref enn í þróuninni

Tónlist ***

Sanitas

Stafrænn Hákon

Sanitas er áttunda plata Stafræns Hákons í fullri lengd, en sú fyrsta, Eignast jeppa, kom út árið 2001. Auk þess hefur hann sent frá sér að minnsta kosti sjö ep-plötur þannig að dugnaðinn vantar ekki. Skemmtileg nöfn á plötum og lögum eru eitt af einkennum Stafræns. Skvettir edik á ref, Prjónar húmmus og Sprengir ílát eru allt plötutitlar og á meðal laga á Sanitas eru: Minning um deig og Val Kilmer.

Stafrænn Hákon er hugarfóstur Ólafs Josephssonar, en á Sanitas koma margir aðrir listamenn við sögu. Fjögur laganna eru samin í samvinnu við Samuel White sem hefur unnið með Ólafi á síðustu plötum. Daniel Lovegrove spilar á trommur, bassa og fleiri hljóðfæri og Magnús Freyr Gíslason og Minco Eggersman semja texta og syngja, auk þess sem fleiri hljóðfæraleikarar koma við sögu í einstaka lögum.

Í upphafi ferilsins var tónlist Stafræns Hákons tilraunakenndur og stemningsfullur samruni raftónlistar og post-rokks. Í seinni tíð hefur hann verið að færa sig nær hefðbundnari lagasmíðum og Sanitas er indírokkplata þar sem skiptast á sungin lög og ósungin. Mörg þessara laga eru stórfín, til dæmis hið kraftmikla Emmer Green sem einkennist af flottum trommuleik, grípandi laglínu og áhrifamiklum gítardrifnum millikafla. Það er sungið af Magnúsi Frey. Ratio 2:3 (at least) er annað öflugt lag, en ólíkt. Það byggist rólega upp í ákveðinn hápunkt og svo fjarar það rólega út. Í gegnum allt er svo þægileg söngmelódía Minco Eggersman. Val Kilmer er líka flott orkumikið og melódískt instrúmentallag.

Hljómurinn á plötunni er flottur og öll vinna á henni er fyrsta flokks. Hins vegar finnst mér platan ekki alveg ná að halda athyglinni út í gegn. Inn á milli góðu laganna eru síðri stykki og of mörg laganna eru of keimlík.

Á heildina litið má segja að þessi áttunda platan Stafræns Hákons sé enn eitt skrefið í þróun hans frá sveimi yfir í rokk. Hún er að mörgu leyti vel heppnuð. Frábær þegar best lætur, en síðri inn á milli.

Trausti Júlíusson

Niðurstaða: Þó að lögin séu svolítið misgóð sýnir Stafrænn Hákon á Sanitas að hann getur vel búið til rokk sem virkar.

 

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.