Tilnefndar til sjö Razzies 2. febrúar 2010 02:00 Megabeibið Megan Fox hlaut tvær tilnefningar til Razzies-verðlaunanna.
Kvikmyndirnar Transformers: Revenge of the Fallen og Land of the Lost fengu sjö tilnefningar hvor til hinna árlegu Razzies-skammarverðlauna í Hollywood. Báðar voru þær tilnefndar sem verstu myndir síðasta árs auk þess sem aðalleikararnir, Megan Fox og Will Ferrell, voru tilnefndir sem verstu leikararnir. Fox var sömuleiðis tilnefnd fyrir hlutverk sitt í Jennifer"s Body. Aðrar myndir tilnefndar sem þær verstu voru All About Steve með Söndru Bullock í aðalhlutverki, G.I. Joe: The Rise of the Cobra og Old Dogs með Robin Williams og John Travolta í aðalhlutverkum. Bullock var einnig tilnefnd sem versta leikkonan, sem er nokkuð skondið því búist er við því að hún verði tilnefnd til Óskarsverðlaunanna í dag fyrir frammistöðu sína í The Blind Side. „Hún gæti orðið fyrsta manneskjan til að hljóta Razzie- og Óskarsverðlaun sömu helgina,“ sagði John Wilson, skipuleggjandi Razzies-verðlaunanna, sem verða afhent í þrítugasta sinn 6. mars, degi á undan Óskarsverðlaununum. Aðrar tilnefndar sem verstu leikkonur voru Miley Cyrus, Beyonce Knowles og Sarah Jessica Parker. Sem verstu leikarar voru einnig tilnefndir Jonas-bræður, Steve Martin, Eddie Murphy og John Travolta. Tilnefningar fyrir verstu myndir og leikara síðasta áratugar voru einnig tilkynntar. Sem versta myndin var Battlefield Earth nefnd til sögunnar ásamt Freddy Got Fingered, Gigli, I Know Who Killed Me og Swept Away. Ben Affleck, sem lék í Gigli, var tilnefndur sem versti leikarinn ásamt John Travolta úr Battlefield Earth. Aðrir tilnefndir voru Eddie Murphy, Mike Myers og Rob Schneider. Í kvennaflokki urðu fyrir valinu þær Lindsay Lohan, Jennifer Lopez, Madonna, Mariah Carey og Paris Hilton.
Mest lesið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Hætt saman en ennþá vinir Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira