Flauta og píanó í forgrunni 10. apríl 2010 06:00 Flautuleikarinn Martial Nardeau spilar í Salnum í Kópavogi í dag ásamt píanóleikaranum Désiré N´Kanoua. fréttablaðið/valli
Flautuleikarinn Martial Nardeau og píanóleikarinn Désiré N"Kaoua spila í Salnum í Kópavogi í dag klukkan 17. Flutt verða verk eftir Bach, Schubert, Roussel, Poulenc og Prokofief sem voru samin fyrir flautu og píanó. „Við erum búnir að æfa okkur vel. Við æfðum aðeins í París í jólafríinu og svo aftur núna. Þetta er mikið prógram. Þetta eru allt mjög falleg verk og eiginlega uppáhaldsverkin okkar eftir þessa höfunda,“ segir Martial, sem hefur verið búsettur á Íslandi síðan 1982. Hann er fastráðinn við Sinfóníuhljómsveit Íslands og kennir í Listaháskóla Íslands. Hann er einnig virkur einleikari og hefur meðal annars leikið einleikskonserta með hljómsveitum hér á landi og erlendis. Désiré N"Kaoua, sem er fæddur í Alsír, er mjög virtur píanóleikari. Hann er eftirsóttur einleikari með ýmsum hljómsveitum, þar á meðal Fílharmoníuhljómsveitum Berlínar, Varsjár, Aþenu og í Sviss. Árið 1998 var hann gerður að opinberum sendiherra franskrar tónlistar. Désiré hefur þrisvar sinnum áður spilað hér á landi en þetta verður í fyrsta sinn sem hann spilar með Martial. „Hann var kennari þar sem ég lærði í Frakklandi og kennarinn minn spilaði með honum. Hann er með mjög mikla reynslu,“ segir Martial, sem hlakkar mikið til að spila með píanóleikaranum snjalla. Aðspurður segist Martial alltaf hafa nóg að gera. Hann er nýkominn frá Póllandi þar sem hann spilaði á tónlistarhátíð og í sumar fer hann til Mallorca þar sem hann verður á annarri hátíð. Hann hvetur alla áhugamenn um falleg tónverk að mæta á tónleikana í dag. „Ég hef ekki spilað á svona tónleikum með píanóundirleik mjög lengi. Þetta verður mjög gaman.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Sjá meira