Bjartmar kærir nafnaþjóf á netinu 29. maí 2010 17:00 Einhver óprúttinn aðili hefur skrifað athugasemdir á netinu undir nafni Bjartmars Guðlaugssonar. Nú hefur tónlistarmaðurinn fengið nóg og ætlar að kæra málið til lögreglu.Fréttablaðið/Hari
Bjartmar Guðlaugsson er kominn með IP-tölu net-níðings sem hefur verið að rífast við fólk á bloggsíðum síðan í mars undir hans nafni. „Það er einhver api sem er að misnota nafnið mitt, vitnar í textana mína sem sína og skrifar í fyrstu persónu Bjartmars Guðlaugssonar,“ segir tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson. Hann stendur í sérkennilegu stappi. Einhver, undir hans nafni, hefur verið að pesta bloggara á netinu og stofna til illdeilna og rifrilda. Bjartmar hyggst bregðast við þessu, hefur fengið IP-tölu netníðingsins hjá tónlistarsérfræðingnum Jens Guð og ætlar að kæra málið til lögreglu. „Hann er augljóslega að þykjast vera ég, það er enginn annar Bjartmar Guðlaugsson sem hefur texta á borð við Fúll á móti.“ Tónlistarmaðurinn segir þetta vera einstaklega hvimleitt fyrir sig vegna þess að hann hafi aldrei á ævi sinni skrifað athugasemd við bloggfærslu, hann sé ekki einu sinni með bloggsíðu sjálfur og þaðan af síður Facebook. „Ég er ekkert á netinu, ég er miklu meira fyrir blekpenna en lyklaborð. Ég les blogg og mér finnst það góður vettvangur fyrir lýðræðið en ég þoli ekki þegar menn skrifa undir fölskum formerkjum.“ Tónlistarmaðurinn segir það hafa verið ótrúlegt að lesa skrif nafnaþjófsins. „Mér er bara meinilla við þetta.“ Bjartmar upplýsir þar að auki að ef hann fyndi hjá sér þörf til að segja honum til syndanna myndi hann ekki gera það í gegnum netið. „Það yrði bara gert undir fjögur augu, ekki í athugasemdakerfi á netinu. Það myndi bara ekki samræmast mínu eðli.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira