Lífið

Misheppnaðar ráðningar

Þykir ekki hafa passað í hlutverk kjarnorkueðlisfræðings í The World Is Not Enough.
Þykir ekki hafa passað í hlutverk kjarnorkueðlisfræðings í The World Is Not Enough.

Kvikmyndanördar velta ýmsu fyrir sér. Á vefsíðu breska blaðsins Sun er rætt um misheppnað val á leikurum. Leikkonan Denise Richards kemst þar á blað fyrir hlutverk sitt sem Dr. Christmas Jones í Bond-myndinni The World Is Not Enough. Lesandi blaðsins vill meina að hún hafi ekki verið trúverðug sem kjarnorkueðlisfræðingur og eru eflaust margir hjartanlega sammála honum. „Ég veit hvernig Bond-myndir geta verið en samt hef ég aldrei séð vel vaxinn kjarnorkueðlisfræðing hlaupa um í níðþröngum fötum,“ skrifaði hann.

Annar lesandi er undrandi á ráðningu Vals Kilmer í hlutverk leðurblökumannsins í Batman Forever. „Hvað er málið? Náunginn er alltof lítill. Ég heyrði að hann hefði þurft að standa á palli í atriðunum með Nicole Kidman. Það er eitthvað rangt við það.“

Einn lesandi blaðsins er ósáttur við Tobey Maguire sem köngulóarmanninn Pétur Parker. „Hann var alltof mikil veimiltíta sem Pétur Parker. Áður en hann fékk ofurkraftana var Pétur Parker algjör nörd. En eftir að Maguire byrjaði að skjóta köngulóarvefnum út um allt gekk hann um með aumingjasvip eins og hvolpur sem hafði verið sparkað í.“

Aðrir sem fá skömm í hattinn eru Uma Thurman sem þótti ekki hafa kynþokkann sem þurfti til í The Avengers og belgíska buffið Jean-Claude Van Damme, einfaldlega vegna allra myndanna sem hann lék í. „Hvort sem hann lék löggu á tímaflakki eða öryggisvörð á hokkíleik hljómaði hann alltaf eins og ferðamaður sem var nýkominn til landsins frá Belgíu,“ skrifaði óánægður lesandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.