Uppselt á tónleika Ólafs Arnalds víða um Evrópu 22. nóvember 2010 00:01 Ólafur Arnalds og hljómsveit í Þýskalandi. Hann ferðast með fjölmennt lið sem gerir útlit tónleikanna tilkomumeira.
Ólafur Arnalds hefur verið í tæpan mánuð á tónleikaferðalagi um Evrópu. Allt hefur gengið eins og í sögu hjá Ólafi og föruneyti hans sem telur 11 manns. „Við erum búin að leggja allt í þennan túr," segir tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds. Ólafur var staddur í Ósló þegar Fréttablaðið hafði uppi á honum. Þar er hann ásamt ellefu manna föruneyti; hljóðfæraleikurum, tæknimönnum og róturum, en hann ferðast með sérhannaða ljósasýningu og myndbönd sem gera tónleikana tilkomumeiri. Ólafur hefur verið í þrjár vikur á ferðalagi og á tvær eftir. Hann kom fram ásamt hljómsveit í Parkteatret í Ósló fyrir helgi og kom síðan fram í Gautaborg í Svíþjóð. „Við höfum verið bæði í þessum venjulegu löndum eins og Þýskalandi, Sviss, Ítalíu, Póllandi," segir Ólafur. „En einnig erum við búin að fara til Ungverjalands og Slóvakíu, sem var alveg geðveikt. Uppselt hefur verið á langflesta tónleika túrsins. Í Berlín var uppselt með 600 manns inni og langri biðröð fyrir utan, fólk sem komst ekki inn." Ólafur hefur gefið út fimm plötur. Sú síðasta, …And They Have Escaped the Weight of Darknes, kom út á árinu og hefur fengið afar lofsamlega dóma. Breska ríkisútvarpið BBC gefur henni til að mynda átta af tíu mögulegum, tónlistartímaritið Spin gefur henni fjóra af fimm og indíbiblían Pitchfork gefur henni sjö af tíu. Þá hafa tónleikar Ólafs hlotið góðar viðtökur og hann finnur fyrir því. „Þetta gengur gríðarlega vel og við heyrum á hverjum degi frá tæknifólkinu hér að þetta sé eitt það flottasta sjó sem það hefir unnið við," segir Ólafur. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Lífið Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Lífið Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð Lífið Fleiri fréttir Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Sjá meira