Vegas-stíll hjá Palla og Sinfó 4. september 2010 00:01 Páll Óskar Hjálmtýsson undirbýr stórtónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem verða haldnir í byrjun nóvember.fréttablaðið/gva
Miðar seldust upp á tvenna tónleika Páls Óskars og Sinfóníuhljómsveitar Íslands á nokkrum klukkustundum. Tvennir aukatónleikar verða haldnir til að anna eftirspurn. „Ég er í skýjunum yfir þessum móttökum. Nú borgar sig bara að fara og gera gott „show“,“ segir Páll Óskar. Miðar á tvenna tónleika hans með Sinfóníuhljómsveit Íslands 4. og 5. nóvember seldust upp á nokkrum klukkustundum á miðvikudag og lá símkerfi Sinfóníunnar niðri um stund vegna of mikils álags. Ákveðið hefur verið að bæta við tvennum aukatónleikum 3. og 6. nóvember. Á tónleikunum mun Páll Óskar líta yfir feril sinn og syngja mörg af sínum vinsælustu lögum, þar á meðal Allt fyrir ástina, Þú komst við hjartað í mér, Ég er eins og ég er, TF-Stuð og nýja lagið, Það geta ekki allir verið Gordjöss. Þessa stundina liggja Páll Óskar, Þórir Baldursson, Samúel J. Samúelsson og tónskáldið Haraldur Sveinbjörnsson yfir útsetningum laganna. „Þetta er farið að hljóma mjög skemmtilega. Við erum að búa til Las Vegas-útgáfur af þessum lögum. Það stefnir í að þetta verði 70% diskó og 30% ballöður. Þetta verða mjög grand lög sem hæfa Sinfóníuhljómsveit Íslands mjög vel,“ segir Palli. „Þetta er stærsta verkefni sem ég hef nokkurn tímann komið nálægt. Þess vegna ákvað ég að velja lög sem maður hefur sungið mikið en líka nota tækifærið og taka lög sem ég hef ekki fengið tækifæri til að syngja eins mikið. Það er til dæmis mjög langt síðan ég hef sungið Anyone Who Had a Heart og Góða nótt,“ segir hann og bætir við að hörpuleikarinn Monika verði gestur á tónleikunum. Eins og áður sagði verður Las Vegas-stíllinn í hávegum hafður á tónleikunum. „Það kallar á mikil búningaskipti og við ætlum líka að nota öll leikhúsmeðölin sem eru til í bókinni. Við ætlum að nota videóskjái líka,“ útskýrir Palli. Aftur á móti er óvíst hvort tónleikarnir verða teknir upp með útgáfu í huga, enda er kostnaðurinn við það töluverður. „Ég er bara ofsa ánægður. Úr því að viðbrögðin eru svona sterk get ég lofað ykkur því að þetta verður mjög skemmtilegt „show“. Ég ætla virkilega að gera mitt besta.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira