Sálin er trú sjálfri sér 13. nóvember 2010 10:00 Stefán Hilmarsson, söngvari Sálarinnar, og Samúel J. Samúelsson verða í góðum gír í Höllinni í kvöld.fréttablaðið/daníel
Sálin og Stórsveit Reykjavíkur spila í Laugardalshöll í kvöld. Aðeins verður um þessa einu tónleika að ræða. Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns heldur tónleika í Laugardalshöll í kvöld í tilefni af útgáfu sinnar nýjustu plötu, Upp og niður stigann. Hún er fyrsta hljóðsversplata þessarar ástsælu sveitar í fimm ár. Stórsveit Reykjavíkur með Samúel J. Samúelsson fremstan í flokki spilar á plötunni og hún verður Sálinni að sjálfsögðu til fulltingis á tónleikunum. Samúel útsetti lúðrablásturinn á plötunni og segist hafa skemmt sér vel við verkefnið. „Það er alltaf gaman að fá að krukka í annarra manna músík. Ég hef unnið töluvert með þeim í gegnum tíðina, gert strengjaútsetningar og brassdót en þetta var dálítið meira núna, sem var bara mjög gaman.“ Samúel fékk fyrst að heyra prufuupptökur með nýjum lögum Sálarinnar þegar hann dvaldi í Brasilíu í byrjun ársins. „Ég var hlustandi á demó af nýrri Sálarplötu liggjandi á ströndinni í Ríó. Það var mjög súrrealískt,“ segir hann. Sálin vildi víkka út hljóm sinn á plötunni með því að fá Stórsveitina til liðs við sig. „Ég held að það hafi alveg tekist. Það er stórt brasssánd komið á þetta en þetta er samt Sálarplata. Þeir eru trúir sjálfum sér,“ útskýrir Samúel. Hann býst við skemmtilegum tónleikum í kvöld. Rennt verður í gegnum nýju plötuna og einnig verða um tíu lög til viðbótar á efnisskránni, þar á meðal eldri slagarar á borð við Krókurinn og Ábyggilega. „Fyrir aðdáendur Sálarinnar verða þetta mjög skemmtilegir tónleikar. Það á líka bara að gera þetta einu sinni, þannig að fólk má ekki missa af þessu.“freyr@frettabladid.is
Mest lesið Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Lífið GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Fleiri fréttir Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Sjá meira