Fyrstu tónleikarnir í fjögur ár 21. ágúst 2010 06:30 Jóhann heldur tónleika í Hallgrímskirkju sem verða hans fyrstu í fjögur ár á Íslandi.
Jóhann Jóhannsson heldur tónleika í Hallgrímskirkju 1. október í samstarfi við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, og 12 Tóna. Þetta verða fyrstu tónleikar Jóhanns á Íslandi í fjögur ár en hann hefur verið að gera það gott á erlendri grundu að undanförnu. Jóhann verður ekki einn síns liðs á tónleikunum því hann mun hafa fimm manna hljómsveit sér til halds og trausts. Hana skipa þau Matthías Hemstock á slagverk, Una Sveinbjarnardóttir og Gréta Guðnadóttir á fiðlur, Guðmundur Kristmundsson á víólu og Hrafnkell Egilsson sellóleikari. Á tónleikunum mun sveitin spila tónlist af þremur plötum Jóhanns: Englabörnum, Fordlandia og IBM 1401, a User"s Manual, í bland við nýtt efni sem enn hefur ekki komið út. Þá mun Magnús Helgason jafnframt sýna kvikmyndir sem hann hefur gert sérstaklega við tónlistina en Magnús er yfirleitt með sveitinni þegar hún spilar erlendis. Kvikmyndir Magnúsar hafa ekki verið sýndar áður á Íslandi. Síðasta hljómplata Jóhanns, And in the endless pause there came the sound of bees, kom út hjá 12 Tónum og í apríl síðastliðnum var hún gefin út um allan heim á vegum Type-útgáfunnar. Platan inniheldur tónlist úr kvikmyndinni Varmints sem hefur fengið fjölda verðlauna og var m.a. tilnefnd til BAFTA-verðlaunanna. Tónlistin sjálf hefur fengið verðlaun á kvikmyndahátíðum í Bandaríkjunum og Japan.
Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira