Björk syngur á plötu Ólafar Arnalds 25. mars 2010 06:00 Ólöf og Björk syngja saman í einu lagi á væntanlegri plötu Ólafar, Innundir skinni.
Björk Guðmundsdóttir syngur dúett í einu lagi á væntanlegri plötu Ólafar Arnalds. Lagið verður eitt þriggja sem er sungið á ensku á plötunni, hin eru á íslensku. Líkt og á fyrstu plötu Ólafar, Við og við sem kom út 2007, vann Kjartan Sveinsson (í Sigur Rós) plötuna með henni. Platan er tilbúin og heitir Innundir skinni, en ekki er frágengið hvenær hún kemur út. Það gæti verið í vor eða í október. Útgefandinn, hið gamalgróna fyrirtæki Sykurmolanna og Bjarkar, One Little Indian, gefur plötuna út. OLI gaf Við og við út í Bandaríkjunum í janúar. Þetta er fyrsti dúett Bjarkar á plötu með íslenskum listamanni síðan hún söng „Ó borg mín borg“ með KK í myndinni Sódóma Reykjavík. Hún og Ólöf eru góðir kunningjar. Í seinni tíð hefur Björk meðal annars sungið dúetta með Anthony Hegarty og Thom Yorke. Björk hefur verið að kíkja á efni á nýja plötu í hljóðverum vestanhafs, en þó er ólíklegt að ný plata með henni líti dagsins ljós á þessu ári. Ólöf er nú á fullu við að kynna sig og tónlist sína. Hún spilaði á dögunum á SXSW-hátíðinni í Austin og fékk mikla athygli. Viðtal við Ólöfu má nú sjá á forsíðu NPR (National Public Radio) útvarpsstöðvarinnar í Bandaríkjunum. Þar er Ísland kynnt, eins og venjan er þegar íslenskir popparar fara í viðtöl erlendis. Mest púður fer þó vitaskuld í að lýsa söng Ólafar. Hann er sagður framandi og dillandi og tónlistin er sögð tímalaus og áhrifamikil. Ólöf kemur næst fram á Íslandi á Aldrei fór ég suður á Ísafirði um páskana. - drg
Mest lesið Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Lífið Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið RIFF í Variety Bíó og sjónvarp Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Lífið Öfund og undirferli Bíó og sjónvarp Aldamótatónleikar á Þjóðhátíð Lífið Púlsinn 14.ágúst 2014 Harmageddon Traustasti gjaldmiðillinn Lífið Smitsjúkdómar í Evrópusambandinu Harmageddon Tony Hawk á Íslandi: Heilsaði upp á aðdáendur í Brettagarðinum og skoðaði Jökulsárlón Lífið Fleiri fréttir Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Ragga Theó fann ástina hjá Davíð Þór Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Stjörnulífið: Fáklædd í fimbulkulda Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum „Er eðlilegt að kynlíf taki af mér stjórn og að ég sé upptekinn af kynlífi flesta daga?“ Gisti þar sem Verdi andaðist fyrir hreina tilviljun Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing Kannast ekki við að vera genginn til liðs við Samfylkinguna „Sílíkon er eitthvað sem mun fara með mér í gröfina“ Aron Can og Erna selja en elska eldhúsbúrið Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Fyrrverandi bassaleikari Scorpions látinn Rifjar upp misgóðar minningar í sölutilkynningunni „Mig langar bara að vera upprétt og sterk“ Tinna Hrafns og Sveinn selja á Laugarásveginum Löggan byrjar á TikTok með því að gasa Egil og Rikka Kvenskælingar svekktir eftir að hafa lent í hakkavél MR tvisvar í röð Heated Rivalry-stjörnur verða á Ólympíuleikunum Fengu gefins sjö nýjar þrautir frá breska þrautahöfundinum Mari og Njörður eiga von á sumarbarni Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Kemur Önnu miðli til varnar: „Þið megið segja að ég sé auðtrúa asni“ Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Lífið
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Lífið