Skilnaðarstríð Tiger og Elin hafið 17. maí 2010 09:00 Fjölmiðlaspekingar og lögfræðingar spá því í bandarískum fjölmiðlum að skilnaður Tiger Woods og Elin Nordergren verði fremur ljótur og ógeðfelldur þar sem allt verði dregið fram í dagsljósið. Elin krefst 46 milljarða frá kylfinginum.
Elin Nordergren, fyrrum eiginkona Tiger Woods, hyggst ekki gefa neitt eftir í skilnaði sínum við besta kylfing heims. Lögfræðingastoð mun koma að sambandsslitum parsins. Elin hefur líkt og skilanefndir íslensku bankanna ráðið sér heilan her fjármálalögfræðinga sem eiga að rannsaka hvort kylfingurinn hafi komið undan eignum. Er Tiger grunaður um að hafa gert það til að minnka það fjárhagslega tap sem hann verður fyrir þegar skilnaðurinn gengur í gegn. Lögfræðingaskrifstofunni McGuire Woods hefur jafnframt verið falið að rannsaka hvort Tiger eigi einhverjar eignir eða fjármuni sem Elin hafi aldrei vitað af. Samkvæmt sunnudagsútgáfu Mirror starfar tvíburasystir Elin, Josefin, hjá McGuire Woods en fyrirtækið sérhæfir sig í því að hafa uppá földum milljörðum auðjöfra. Lögfræðingarnir bætast við þann hóp sem Elin hefur ráðið sér í Flórída. Samkvæmt heimildarmanni Mirror hefur það alltaf legið ljóst fyrir hjá Elin að hún ætli sér alls ekki að berjast við Tiger um peninga heldur fari hún fram á sanngjarna upphæð sem talin er nema 240 milljónum punda eða 46 milljörðum íslenskra króna. „Hún vill einfaldlega vita hversu mikla peninga Tiger á. Upphæðin sem hún krefst er mjög sanngjörn, þetta er þriðjungshlutur af því sem hann hefur þénað á þeim árum sem voru þau gift. Ég held reyndar að Tiger eigi miklar eignir." En eins og frægt er orðið hélt kylfingurinn framhjá konu sinni með fjölda kvenna. Bandarískir skilnaðar-sérfræðingar spá engu að síður að Elin og Woods verði skilin áður en árið 2010 er á enda. -fgg
Mest lesið „Ég er óléttur“ Lífið Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum Lífið Fékk leyfi Nóbelskálds fyrir heiti nýrrar bókabúðar í Hamraborg Menning „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Lífið Er Ormstunga djarfasta sýning ársins? Gagnrýni Kynlífssena sautján ára stúlku hafi splundrað samstarfi bræðranna Bíó og sjónvarp Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Tíska og hönnun Gert til að efla hvatberana og frumurnar Lífið Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Lífið samstarf Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Lífið Fleiri fréttir Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Ragga Theó fann ástina hjá Davíð Þór Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Stjörnulífið: Fáklædd í fimbulkulda Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum „Er eðlilegt að kynlíf taki af mér stjórn og að ég sé upptekinn af kynlífi flesta daga?“ Gisti þar sem Verdi andaðist fyrir hreina tilviljun Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“