Mamma Gógó fulltrúi Íslands 10. september 2010 11:00 Mamma Gógó þykir vera í hópi 43 bestu kvikmynda Evrópu þetta árið og gæti verið tilnefnd til evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Valdís Óskarsdóttir, Kjartan Sveinsson og Karl Óskarsson koma einnig að kvikmyndum sem eiga möguleika á sömu tilnefningu.
Kvikmynd Friðrik Þórs Friðrikssonar, Mamma Gógó, er framlag Íslands til evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Fjörutíu og þrjár myndir eiga möguleika á því að vera tilnefndar en þessi sjálfsævisögulega kvikmynd Friðriks hefur mælst einstaklega vel fyrir á kvikmyndahátíðum um allan heim. Einn af dagskrárstjórum Toronto-hátíðarinnar, Steve Gravestock, fór lofsamlegum orðum um myndina á heimasíðu norræna sjónvarps-og kvikmyndasjóðsins og sagði hana tvímælalaust eina af bestu myndum leikstjórans. Valdís Óskarsdóttir, Kjartan Sveinsson og Karl Óskarsson eiga einnig stóran hlut í fjórum kvikmyndum af þessum 43, en evrópska kvikmyndaráðið tilkynnti nýverið hvaða kvikmyndir eiga möguleika á því að vera tilnefndar í flokknum besta myndin. Karl Óskarsson kvikmyndatökumaður var á bak við tökuvélarnar í tékknesku kvikmyndinni Three Seasons in Hell. Karl fékk tékknesku kvikmyndaverðlaunin fyrir störf sín í kvikmyndinni. Írska myndin Ondine eftir Neil Jordan er einnig í þessum hópi en Kjartan Sveinsson, liðsmaður Sigur Rósar, samdi einmitt tónlistina við þá mynd. Þá á danska kvikmyndin Submarino einnig möguleika en Valdís Óskarsdóttir og Andri Steinn klipptu myndina. Leikstjóri hennar er Thomas Winterberg. - fgg Hljómsveitin Sigur Rós Orri Páll Dýrason Georg Holm Kjartan Sveinsson Jón Þór Birgisson Kjartan Sveinsson í Sigur RósKarl Óskarsson kvikmyndatökumaðurFriðrik Þór Friðriksson Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri
Mest lesið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Lífið Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Lífið Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið Lífið Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Lífið Stefnir með sjö fjölskyldum aftur á Unglingalandsmótið Lífið samstarf Feimnin við að rukka: Ekki treysta á „ég borga þetta og þú næsta“ Áskorun „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Lífið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Lífið Stríðið um baðstrendur Ítalíu Lífið Uppskriftir: Axel bauð í þriggja rétta grillveislu Lífið samstarf Fleiri fréttir Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Sjá meira