Dikta freistar gæfunnar í Þýskalandi 14. maí 2010 07:00 Nonni kjuði, eða Jón Þór Sigurðsson, er spenntur fyrir tónleikaferð Diktu til Þýskalands og Lúxemborgar.
Hljómsveitin Dikta er á leiðinni í stutta tónleikaferð til Þýskalands og Lúxemborgar. Sveitin flýgur af landi brott á miðvikudaginn í næstu viku og tónleikarnir verða fernir, þar af þrennir í Þýskalandi. „Það er svolítið síðan við höfum farið út. Við erum spenntir að komast eitthvað og ætlum að grallarast saman og hafa gaman," segir trommarinn Nonni kjuði, sem heitir réttu nafni Jón Þór Sigurðsson. „Við ætlum líka að hitta fólk sem við höfum verið að vinna með í Þýskalandi sem við höfum ekki hitt augliti til auglitis." Um þýskt útgáfufyrirtæki er að ræða sem hefur verið í viðræðum við Diktu í nokkurn tíma um útgáfu plötu þeirra þar í landi og víðar um Evrópu. Dikta fór síðast í tónleikaferð erlendis haustið 2008 þegar hún spilaði í Los Angeles og New York og því kominn tími til að hún haldi áfram að breiða út fagnaðarerindið. Stefnan hefur verið sett á aðra tónleikaferð í haust en ekki er ljóst hvert farið verður. Í sumar verður síðan nóg að gera hjá Diktu hér heima. Sveitin er þegar búin að bóka sig fyrir verslunarmannahelgina auk þess sem fjöldi balla er fyrirhugaður víðs vegar um landið. Einnig stefnir sveitin á að taka upp nýtt prufuefni í sumar og gangi upptökurnar vel er stefnan sett á plötu sem kæmi líklega út á næsta ári. Nonni kjuði segist ekki hafa búist við þessum gríðarlegu vinsældum Diktu að undanförnu. „Þetta er bara rosagaman, sérstaklega af því að við gerðum þetta svo mikið sjálfir. Við unnum plötuna alveg sjálfir nema hljóðblöndun og masteringu. Þess vegna er enn þá meira gaman að uppskera svona." - fb
Mest lesið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Fleiri fréttir Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Sjá meira