Morr dreifir nýrri plötu Miri 7. nóvember 2010 09:15 Platan Okkar með Miri verður sett í dreifingu undir merkjum Morr í Evrópu.
Útgáfufyrirtækið Kimi Records ætlar að dreifa fyrstu plötu hljómsveitarinnar Miri, Okkar, í Evrópu undir merkjum þýsku útgáfunnar Morr. Svipaður háttur hefur verið hafður á með plötur hljómsveitanna FM Belfast og Benna Hemm Hemm, sem eru báðar á mála hjá Kimi. „Morr hefur verið að vinna með Kimi sem dreifingaraðili í Evrópu og okkur barst til eyrna að Thomas Morr væri mjög áhugasamur um okkur," segir Hjalti Jón Sverrisson úr Miri og á þar við stofnanda Morr. Baldvin Esra Einarsson hjá Kimi Records segir að Miri hafi vakið töluverða athygli á Airwaves-hátíðinni og þýskir fjölmiðlar hafi sýnt þeim áhuga. Umfjöllun um hljómsveitina er því væntanleg þar í landi á næstunni. Miri er rokksveit sem hefur starfað í fimm ár með hléum. Hún gaf út eina EP-plötu áður en stóra platan „Okkar" kom út hér á landi í sumar við góðar undirtektir. Platan er án söngs fyrir utan eitt lag sem Örvar Þóreyjarson Smárason úr múm syngur. Baldvin Esra telur framtíð Miri bjarta í tónlistarheiminum. „Við höfum mikla trú á þessum strákum. Við höfðum aldrei það að markmiði að gefa plötuna þeirra bara út á Íslandi," segir hann og vonar að sveitin komist í auknum mæli á tónleikaferðir erlendis og á tónlistarhátíðir á næstu árum.- fb
Mest lesið Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Fleiri fréttir Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Sjá meira