Í fótspor Friðriks Þórs 22. febrúar 2010 05:15 Kvikmyndagerðarmaðurinn ungi sýnir heimildarmynd sína, Hringurinn II, 2. mars næstkomandi.fréttablaðið/valli
Eysteinn Guðni Guðnason frumsýnir heimildarmynd sína, Hringurinn II, 2. mars, nákvæmlega 25 árum eftir að Friðrik Þór Friðriksson frumsýndi mynd sína Hringurinn. Sú mynd var tekin upp í bíl sem ók hringinn í kringum landið án þess að leikarar kæmu við sögu og gerði Eysteinn slíkt hið sama síðasta haust. Myndin verður sýnd á hvor sínum húsveggnum fyrir utan heimili Eysteins á Laugaveginum þar sem óprúttnir aðilar skvettu nýverið rauðri málningu. „Ég er búinn að hafa augastað á þessum veggjum sem eru hvor á móti öðrum því þetta er mynd með tveimur römmum, einum að framan og einum aftan á,“ segir Eysteinn, en myndin var tekin upp þannig að einni myndavél var beint fram veginn og annarri aftur á bak meðan á ferðalaginu stóð. Einn rammi var tekinn upp á tíu metra fresti. „Þetta er óhefðbundin mynd og þar sem bíóin bjóða ekki upp á tvö tjöld í sama salnum ákvað ég að finna aðra leið til að sýna hana. Þetta er kjörin staðsetning á Laugaveginum og mér varð hugsað til hennar. Ég var að hugsa að það þyrfti að fara að mála þessa veggi og svo skvetta þeir þessari málningu þarna, þannig að það var alls ekkert svo slæmt. Það gaf mér tilefni til að mála veggina aftur,“ segir hann. Eysteinn segist ekki vita hverjir voru þarna að verki en tekur fram að hann sé alls enginn útrásarvíkingur. Hann var fljótur að mála yfir skvettuna, enda segir hann það afar mikilvægt. „Það er tvennt sem maður græðir á því. Maður tekur burtu tilganginn hjá kroturunum og kemur í veg fyrir áframhaldandi krot, því ef það kemur eitt þá laðar það að sér fleiri.“ - fb
Mest lesið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Fleiri fréttir Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Sjá meira