Jenna Jameson kærir kærastann fyrir barsmíðar | Myndir 27. apríl 2010 11:45 Tito Ortiz er höfðinu hærri en Jenna Jameson, meistari í UFC-glímu og tvisvar sinnum þyngri.
Fyrrum klámleikkonan Jenna Jameson og kærasti hennar, UFC-glímukappinn Tito Ortiz, eiga nú í deilu sem gæti leitt til forræðisdeilu yfir 13 mánaða gömlum tvíburum þeirra, Jesse og Journey. Á mánudagskvöld kallaði faðir Jennu lögreglu til heimilis þeirra í Kaliforníu. Hjónin höfðu þá rifist heiftarlega og var Tito handtekinn. Stuttu seinna fór Jenna með risasólgleraugu út á hlað og ræddi við fjölmiðlamenn. Hún sýndi þeim áverka á olnboga og tilkynnti að hún myndi kæra glímukappann. Seinna um kvöldið var Tito sleppt úr haldi og hélt hann þá blaðamannafund. Þar sagði hann Jennu vera háða verkjalyfinu OxyContin og hafa áður hótað sjálfsvígi. Ástæða rifrildisins væri að hún hefði tekið kast þegar hann fann skammt af lyfinu á heimilinu. Faðir hennar hefði þess vegna hringt á lögregluna. Tito sagði ekki rétt að hann hefði ráðist á Jennu, hún hefði dottið á olnbogann. „Fólk sem tekur þetta lyf er með lélegt jafnvægisskyn," sagði hann og bætti við að fjölskylda Jennu stæði með honum í málinu. Svo fór hann að gráta á blaðamannafundinum og sagði foreldra sína einnig hafa glímt við fíkn. Jenna neitaði þessum ásökunum skömmu seinna. Sagði glímukappann aðeins reyna að finna afsökun fyrir því að hafa ráðist á sig. „Við vorum að rífast og ég móðgaði hann. Þá greip hann mig og henti mér í baðkarið af slíkum krafti að axlarvöðvinn rifnaði," sagði Jenna. Hún bætti við að allar vonir sínar um að ná saman á ný vegna barnanna hefðu brostið þegar hann ásakaði hana um lyfjanotkunina. Vegna aðgöngubanns eftir handtökuna má parið ekki hittast í einn mánuð. Þau byrjuðu saman árið 2006. Jenna og Tito á frumsýningu árið 2008.Frumsýning árið 2007.Í partý í Vín árið 2007.Kálfatattú Jennu.Axlartattúin.Á Golden Globe-hátíðinni árið 2006.Á frumsýningu árið 2008.Jenna hefur farið í fjölda lýtaaðgerða í gegnum tíðina, frægt er þegar hún lét minnka sílíkonbrjóstin þegar hún hætti í klámbransanum upp úr aldamótum.Hér er Jenna í markaðsherferð á vegum PETA-samtakanna fyrir gervileður, pleather.Jenna ennþá í klámbransanum árið 1998. Hér á Hot D'or, aðalverðlaunahátíð bransans í Cannes.Með Tito árið 2008.
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Í festival gír með Icewear Lífið samstarf Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Lífið samstarf Bylgjulestin brunar á Flúðir Lífið samstarf Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira