Fimmfaldur Arnar á Airwaves 4. október 2010 10:00 Það verður nóg að gera hjá Arnari Þór á Airwaves-hátíðinni. Hann spilar með fimm hljómsveitum á stuttum tíma. fréttablaðið/valli
Arnar Þór Gíslason spilar með fimm hljómsveitum á Iceland Airwavs-hátíðinni, þar á meðal rokkurunum í Ham í fyrsta sinn. „Þetta er stórkostleg upplifun að spila með þessum herramönnum,“ segir Arnar Þór. Hann mun lemja húðirnar í fjarveru nafna síns Arnars Geirs Ómarssonar, sem er með gigt og þarf því að hafa hægt um sig. Arnar Geir ætlar að einbeita sér að spilamennsku með Apparat á hátíðinni en sú sveit er töluvert rólegri en Ham. „Þetta er svo hátt hjá strákunum og það verður að lemja svo fast að gigtin fer alveg með hann, þannig að ég létti undir með honum,“ segir Arnar Þór og er hvergi banginn við verkefnið. „Ég ætla að gera mitt allra besta.“ Hann hefur verið aðdáandi Ham lengi og því er ákveðinn draumur að rætast hjá honum. „Þetta er geðveikt band.“ Fjöldi annarra verkefna eru fram undan hjá Arnari á Airwaves því á undan Ham-tónleikunum spilar hann með Ensími og þar áður með tengdaföður sínum Rúnari Þórissyni. „Þetta verður magnað kvöld. Það verður nóg að gera.“ Ofan á þessi gigg bætast tónleikar með eiginkonu hans Láru Rúnarsdóttur og Mugison. Arnar er einnig meðlimur Dr. Spock en sú sveit verður reyndar ekki með á Airwaves í ár. „Ég hef alltaf spilað með slatta af hljómsveitum á Airwaves. Þetta hefur oft staðið tæpt og ég hef oft þurft að hlaupa á milli staða en það er bara gaman að því.“ - fb
Mest lesið Feimnin við að rukka: Ekki treysta á „ég borga þetta og þú næsta“ Áskorun „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Lífið Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Lífið Stríðið um baðstrendur Ítalíu Lífið Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Lífið Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Lífið „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Lífið Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Bíó og sjónvarp Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Lífið Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Lífið Fleiri fréttir Bréf um góða stemningu um borð í Titanic til sölu Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Sjá meira