Lífið

Vilja fleiri konur í KF Mjöðm og búa til Mjaðmarbörn

Knattspyrnufélagið KF Mjöðm rekur einnig kvennadeild sem var stofnuð síðasta haust.
Knattspyrnufélagið KF Mjöðm rekur einnig kvennadeild sem var stofnuð síðasta haust.

„Við viljum hvetja stúlkur til að mæta og kynna sér starfið," segir Steinþór Helgi Arnsteinsson hjá knattspyrnufélaginu KF Mjöðm.

Fyrsta vorhátíð Mjaðmar, Bjúddarinn 2010, verður haldin í Iðnó á föstudaginn. Félagið, sem er skipað ýmsum listaspírum úr Reykjavík, stofnaði kvennadeild síðasta haust og að sögn Steinþórs Helga er fjöldi mætra stúlkna þegar kominn um borð.

„Þetta er eitt af skrefunum í metnaðarfullu starfi KF Mjaðmar. Við viljum stækka og stækka og síðan sjáum við til hvar við stöndum eftir fimmtíu ár. Það eru þegar komin nokkur Mjaðmarbörn og það styttist því í að við förum að byrja með unglingastarf."

Á vorhátíðinni koma fram Hjaltalín, Agent Fresco, Retro Stefson, Mjaðmbó Kings og Jack Schidt, auk þess sem meðlimir FM Belfast og múm þeyta skífum. Nokkrir úr þessum hljómsveitum eru einmitt hluti af KF Mjaðmar-hópnum. Að sögn Steinþórs stóð til að fá landsliðskonuna Margréti Láru Viðarsdóttur til að mæta á hátíðina sem sérstakan verndara félagsins en ekkert varð af því. „Hún er guð í augum okkar allra og á stóran sess í hjörtum okkar."

Í skarð hennar á hátíðinni hleypur Mjaðmgeir Lárus, öðru nafni plötusnúðurinn Margeir. Steinþór leggur áherslu á að konur mæti í Iðnó. „Þetta er líka kjörinn vettvangur til að hittast og búa til Mjaðmarbörn."

Auk tónleikanna verður fleira í boði. Listamaðurinn Davíð Örn Halldórsson fremur myndlist, nýr búningur KF Mjaðmar hannaður af Guðmundi Jörundssyni verður frumsýndur og kynnir verður leikarinn Ragnar Ísleifur Bragason. Miðaverð er 1.000 krónur og skemmtunin hefst klukkan 22.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.