Innlent

Fimm þingmenn á leið til Lundúna

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Sendinefnd á vegum utanríkismálanefndar Alþingis heldur til Lundúna næstkomandi mánudag til viðræðna við breska þingmenn til að ræða samskipti ríkjanna og um Icesave. Fimm þingmenn úr öllum flokkum fara í ferðina.

Nefndin mun eiga fundi með formanni og fulltrúum úr utanríkismálanefnd neðri deildar breska þingsins og einnig með formanni og fulltrúum úr fjárlaganefnd. Jafnframt munu íslensku þingmennirnir funda með vináttuhópi Íslands og Bretlands sem starfar í breska þinginu.

Af hálfu utanríkismálanefndar sækja Árni Þór Sigurðsson VG, Valgerður Bjarnadóttir Samfylkingu, Birgitta Jónsdóttir Hreyfingunni, Bjarni Benediktsson Sjálfstæðisflokki og Gunnar Bragi Sveinsson Framsóknarflokki fundina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×