Handleggsbraut hljómsveitarfélaga sinn 11. desember 2010 13:00 Björgvin og Smári eru ennþá saman í tveimur hljómsveitum þrátt fyrir að sá síðarnefndi hafi handleggsbrotið hinn. Umbúðir Björgvins eru þó svo tæknilegar að hann getur rennt þeim af.fréttablaðið/anton „
Ég get ekki spilað á gítarinn, en ég prófa að spila á bassa,“ segir Björgvin Ívar Baldursson, gítarleikari hljómsveitanna Lifun og Klassart. Björgvin spilar fótbolta með utandeildarliðinu FC Keppnis ásamt Smára Guðmundssyni, félaga sínum í báðum hljómsveitunum. Þegar hann hugðist verja þrumufleyg frá Smára á æfingu á dögunum vildi ekki betur til en boltinn hafnaði í úlnliði Björgvins og braut það sem fyrir varð. „Æfingin var að verða búin. Ég var kominn í stellingu og var að fara að skutla mér eftir skoti Smára, þá negldi hann beint á mig – í punghæð,“ rifjar Björgvin upp. „Þá var ég með höndina fáránlega staðsetta og fékk boltann í úlnliðinn. Ég sá svart og engdist af sársauka.“ Óhappið kom á versta tíma fyrir Björgvin, en hann sér ekki fram á að geta leikið á gítar með hljómsveitunum sínum á þessum annasamasta tíma ársins. Hann hyggst þó reyna að bíta á jaxlinn, kyngja verkjalyfjum og spila áfram á bassa með kántríhljómsveit Selmu Björnsdóttur. „Ég ætla að reyna að haga þessu þannig að þetta verði ekki tekjutap. Það er aðallega peningur í jólahlaðborðunum og ég ætla að reyna að redda mér á bassanum,“ segir hann og bætir við að hann sé þegar búinn að finna varamann á gítarinn í Lifun. Sá heitir Birkir Hrafn Gíslason og hefur þegar leyst Björgvin af á tvennum tónleikum. „Það er helvíti fínt,“ segir Björgvin. „Ég gat séð Lifun á tónleikum tvo daga í röð.“ - afb
Mest lesið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Lífið samstarf Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira