Söngvari Poison í lífshættu 26. apríl 2010 04:00 Glysrokkarinn liggur á spítala eftir að hafa fengið heilablóðfall. Nordicphotos/Getty MYND/Getty
Bret Michaels, söngvari glysrokksveitarinnar Poison, var fluttur með hraði á sjúkrahús fyrir helgi eftir að hann fékk alvarlegt heilablóðfall. Hann er enn á sjúkrahúsi og var á gjörgæsludeild fyrstu sólarhringana eftir áfallið. Nú er Michaels vaknaður og hefur að sögn talað við sína nánustu á sjúkrahúsinu. Tvennum sögum fór reyndar af líðan hans í gær; einhverjir miðlar héldu því fram að Bret væri við hestaheilsu en aðrir sögðu að hann væri enn í lífshættu. Að sögn talsmanns söngvarans hafði hann þjáðst af miklum höfuðverkjum daginn sem hann fékk heilablóðfallið. „Við erum vongóð um að rannsóknir leiði í ljós hvaðan blæðir. Við vitum öll að Bret er harður af sér og erum vongóð um að hann muni ná sér að fullu,“ segir í yfirlýsingu á Facebook-síðu Michaels. Fyrr í þessum mánuði var Michaels lagður inn á spítala vegna magaverkja. Þá var botnlangi hans fjarlægður. Bret Michaels er 47 ára gamall og hefur undanfarið haft viðurværi sitt af raunveruleikastjónvarpi. Hljómsveitin Poison naut talsverðra vinsælda á níunda áratugnum. Þá stóð Bret Michaels fremst á sviðinu með vindinn í hárinu og söng lög á borð við Every Rose Has Its Thorn og Unskinny Bop.
Mest lesið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Fleiri fréttir Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Sjá meira