Kolsvartur pakki frá XIII 13. september 2010 20:00 Rokksveitin sendir frá sér tvöföldu plötuna Black Box í dag.
Rokksveitin XIII sendir frá sér tvöföldu plötuna Black Box í dag. Þar verða öll bestu lög sveitarinnar ásamt sjö nýjum lögum sem voru tekin upp í sumar. „Við erum búnir að spila mikið undanfarið ár og höfum fundið fyrir miklum áhuga," segir forsprakkinn Hallur Ingólfsson. „Fólk var alltaf að spyrja hvort það væru ekki til plötur með okkur og við sögðumst vera búnir að gera fullt af plötum sem væru ekki til lengur. Þannig að við ákváðum að kýla á þetta og gera nýtt efni líka," segir hann. „Það sem er athyglisvert er að þegar við erum að spila koma margir ungir krakkar sem þekkja öll lögin. Okkur hálf brá til að byrja með." Eigendum Black Box gefst kostur á að hlaða niður öllum fyrri plötum XIII á stafrænu formi, endurgjaldslaust. Um er að ræða plöturnar Salt, Serpentyne og Magnifico Nova sem allar hafa verið endurhljóðblandaðar í tilefni af útgáfu Black Box. Einnig fylgir með veglegur 32 síðna bæklingur þar sem farið er yfir langa og viðburðaríka sögu sveitarinnar í máli og myndum. XIII, sem var stofnuð 1993, hefur verið iðin við tónleikahald síðan hún tók aftur til starfa haustið 2009 eftir langt frí. Hallur, sem syngur og leikur á gítar, leiðir XIII sem fyrr en með honum leika Eiríkur Sigurðsson á gítar, Jón Ingi Þorvaldsson á bassa og Birgir Jónsson á trommur. Útgáfutónleikar verða á Sódómu Reykjavík á föstudaginn. Nánari upplýsingar um sveitina má finna á síðunni XIII.is, sem og á Myspace- og Facebook-svæðum hennar. - fb
Mest lesið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Laufey á landinu Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Fleiri fréttir Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Sjá meira