Lífið

Nóg pláss á Kanadamarkaði

Skjálfti Jón Elías, annar eigenda Ölvisholts, með kippu af Skjálfta.
fréttablaðið/pjetur
Skjálfti Jón Elías, annar eigenda Ölvisholts, með kippu af Skjálfta. fréttablaðið/pjetur

„Ég held að það sé alveg pláss fyrir okkur tvo á markaðnum. Við fögnum þessu öllu saman,“ segir Bjarni Einarsson, annar af eigendum bruggverksmiðjunar Ölvisholts.

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, sagði í viðtali við Fréttablaðið fyrir skömmu að hann vissi ekki betur en Egils Gull væri fyrsti íslenski bjórinn sem færi á markað í Kanada. Það er ekki rétt því á síðasta ári hóf Ölvisholt innrás sína til Kanada með bjórana Skjálfta og Lava. Bjarni segir að viðtökurnar við bjórunum tveimur hafi verið mjög góðar í ríkjunum Manitoba og Ontario þar sem þeir hafa verið seldir.

„Það er smökkunaraðili sem tekur út bjórinn hjá okkur og þegar hann smakkaði Skjálfta sagði hann að þetta væri einn besti Premier Lager-bjór sem hann hefði smakkað. Hann hefur unnið hjá LCBO í þrjátíu ár,“ segir Einar. LCBO er nokkurs konar ÁTVR þeirra í Ontario og telst vera stærsti kaupandi áfengis í veröldinni.

„Viðtökurnar hafa verið mjög góðar en við erum ekki farnir að sjá fyrstu sölutölur. Við gerum mikið út á þá sérstöðu sem er í okkar bjór, bæði varðandi gæði og nafngiftirnar,“ segir Einar. Spurður segist hann ekki líta svo á að Ölvisholt verði í samkeppni við Ölgerðina í Kanada.

„Við lítum fyrst og fremst á þá sem okkar samstarfsmenn í íslensku innrásinni í Kanada.“ - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.