Fótbolti

Maradona á von á erfiðari leikjum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Diego Maradona fagnar með Lionel Messi eftir leikinn í kvöld.
Diego Maradona fagnar með Lionel Messi eftir leikinn í kvöld. Nordic Photos / AFP
Diego Maradona hefur sagt landsmönnum sínum í Argentínu að stilla væntingum í hóf fyrir komandi átök á HM í Suður-Afríku.

Argentína hlaut fullt hús stiga í B-riðli eftir 2-0 sigur á Grikklandi fyrr í kvöld og mætir Mexíkó í 16-liða úrslitunum á sunnudaginn kemur.

„Nú verður leiðin erfiðari," sagði Maradona eftir leikinn í kvöld. „Maður heyrir að lið eins og Þýskaland, Ítalía og Brasilía séu að spila illa en þetta eru lið sem eru alltaf í annarri umferð keppninnar, fjórðungsúrslitum, undanúrslitum og sjálfum úrslitunum," bætti hann við.

Maradona gerði sjö breytingar á byrjunarliði Argentínu í kvöld enda var liðið búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum fyrir leikinn. Lionel Messi var fyrirliði í kvöld í fjarveru Javier Mascherano sem var einn þeirra sem var hvíldur. Þar með varð Messi yngsti fyrirliðinn í sögu argentínska landsliðsins en hann verður 23 ára á fimmtudaginn.

„Þetta var einstök reynsla og mjög sérstök," sagði Messi eftir leikinn í kvöld. „Ég vissi að þetta yrði eitthvað stórkostlegt."

Maradona sagði að hann vildi ekki hvíla Messi í kvöld. „Við viljum verða heimsmeistarar með Messi. Við hefðum getað hvílt hann en við vildum að hann myndi spila. Það eru margir sem vilja sjá hann og það hefði verið synd að taka hann úr liðinu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×