Maradona á von á erfiðari leikjum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. júní 2010 23:45 Diego Maradona fagnar með Lionel Messi eftir leikinn í kvöld. Nordic Photos / AFP
Diego Maradona hefur sagt landsmönnum sínum í Argentínu að stilla væntingum í hóf fyrir komandi átök á HM í Suður-Afríku. Argentína hlaut fullt hús stiga í B-riðli eftir 2-0 sigur á Grikklandi fyrr í kvöld og mætir Mexíkó í 16-liða úrslitunum á sunnudaginn kemur. „Nú verður leiðin erfiðari," sagði Maradona eftir leikinn í kvöld. „Maður heyrir að lið eins og Þýskaland, Ítalía og Brasilía séu að spila illa en þetta eru lið sem eru alltaf í annarri umferð keppninnar, fjórðungsúrslitum, undanúrslitum og sjálfum úrslitunum," bætti hann við. Maradona gerði sjö breytingar á byrjunarliði Argentínu í kvöld enda var liðið búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum fyrir leikinn. Lionel Messi var fyrirliði í kvöld í fjarveru Javier Mascherano sem var einn þeirra sem var hvíldur. Þar með varð Messi yngsti fyrirliðinn í sögu argentínska landsliðsins en hann verður 23 ára á fimmtudaginn. „Þetta var einstök reynsla og mjög sérstök," sagði Messi eftir leikinn í kvöld. „Ég vissi að þetta yrði eitthvað stórkostlegt." Maradona sagði að hann vildi ekki hvíla Messi í kvöld. „Við viljum verða heimsmeistarar með Messi. Við hefðum getað hvílt hann en við vildum að hann myndi spila. Það eru margir sem vilja sjá hann og það hefði verið synd að taka hann úr liðinu."
HM 2010 í Suður-Afríku Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Fótbolti Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Íslenski boltinn Uppgjörið KR - Grindavík 93-71 | KR annað liðið til þess að vinna Grindavík Körfubolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Fleiri fréttir „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Inter skoraði sex mörk og náði sex stiga forskoti á toppnum Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Unnu leikinn án þess að skjóta á markið Bretar ósáttir með „ódýran brandara“ Infantino Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn „Hann er sonur minn“ Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Hákon og félagar léku manni fleiri í klukkutíma en töpuðu samt Sancho tryggði Aston Villa áfram í Evrópudeildinni Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Fimm daga fangelsi fyrir að klæðast Borat skýlu á Meistaradeildarleik Sigurður Bjartur á leið til Spánar? „Lagar lekann í smástund en þetta er ekki Liverpool-leiðin“ Freyr orðinn þreyttur á endalausu slúðri Stjarnan selur Adolf Daða til FH Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu Heimavinnan skilaði marki fyrir Szoboszlai Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Newcastle og Chelsea unnu bæði í Meistaradeildinni í kvöld Lewandowski skoraði fyrir bæði félög í Prag Sjá meira
Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu