Hugleikur gefur út Popular Hits í tveimur löndum á sama tíma 8. apríl 2010 07:00 Hugleikur sendir frá sér bókina Popular Hits í næstu viku. Í bókinni myndskreytir Hugleikur vinsæl erlend dægurlög.
Hugleikur Dagsson sendir frá sér bókina Popular Hits í næstu viku. Í henni tekur hann fyrir vinsæl erlend dægurlög. „Bókin er í prentun núna og planið er að hún verði komin út 16. apríl," segir skopmyndateiknarinn og bókaútgefandinn Hugleikur Dagsson. Hugleikur sendi frá sér bókina íslensk dægurlög fyrir síðustu jól, en í henni myndskreytti hann og sneri út úr íslenskum dægurlögum. Í næstu viku kemur svo út Popular Hits þar sem erlend lög verða fyrir barðinu á skopskyni Hugleiks, sem hefur aflað honum mikilla vinsælda hér heima og erlendis. „Bókin er eins og íslensk dægurlög, nema á ensku. Það er ómögulegt að þýða íslensk dægurlög sem bara Íslendingar þekkja þannig að ég varð að gera erlend dægurlög í staðinn sem heitir þá Popular Hits," útskýrir Hugleikur." Eins og titillinn gefur til kynna er bókinni einnig ætlað að höfða til útlendinga, sem voru skildir út undan þegar Íslensk dægurlög komu út. „Það er pælingin að selja túristum bókina og senda hana út í heim og sjá hvort einhver vilji kaupa hana," segir Hugleikur. „Reyndar, áður en ég var hálfnaður með bókina, var Finnland búið að kaupa hana þannig að hún kemur út á sama tíma í Finnlandi." Íslenskt skopskyn virðist falla vel í kramið í Finnlandi. Finnskt forlag hefur gefið út verk Hugleiks og finnska ríkissjónvarpið var fyrsta sjónvarpsstöðin utan Íslands sem tryggði sér sýningarréttinn á Nætur-, Dag- og Fangavaktinni. Það er eins og Íslendingar höfði sérstaklega vel til drykkfelldra þunglyndissjúklinga… „Það er rétt enda eru Íslendingar drykkfelldir þunglyndissjúklingar," segir Hugleikur. „Ég hef alltaf sagt það og alltaf fundist það. Ég er búinn að fara þangað allavega fjórum sinnum til að kynna bækurnar mínar og er hvergi jafn vinsæll. Ég held að það sé vegna þess að Finnarnir eru ofsalega svipaðir okkur. Það hefur kannski eitthvað með kuldann og myrkrið að gera." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Fleiri fréttir Ed Sheeran sparkar Mackelmore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Sjá meira