Tuttugu beinar útsendingar á dag frá eldgosinu á Íslandi 20. apríl 2010 06:00 Fréttastöðvar frá öllum heimshornum hafa verið með beinar útsendingar frá Íslandi undanfarna daga. Búi Baldvinsson hjá Kukli segir um tuttugu beinar útsendingar vera frá Eyjafjallajökli á dag. Fréttablaðið/GVA
Stærstu fréttastöðvar heims hafa verið að koma sér upp aðstöðu við rætur Eyjafjallajökuls og mikið aukaálag hefur verið á starfsmönnum íslensku fréttastofanna við að þjónusta erlendu stöðvarnar. Útsendingarbílar RÚV og Stöðvar 2 hafa verið í sólarhringsnotkun frá því fyrir helgi. Magnið af umfjöllun erlendra miðla um gosið er farið að nálgast þann mikla fjölmiðlasirkus sem ríkti í kringum efnahagshrunið og blaðamannafundina frægu í Iðnó. Fjöldi beinna útsendinga frá Íslandi er yfir tuttugu á dag. Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV, segir RÚV þjónusta evrópsku sjónvarpsstöðvarnar í samræmi við samstarfssamning EBU, Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva. „Útsendingarbíllinn okkar hefur verið í nánast stanslausri notkun og við erum bara að redda þeim með hina og þessa hluti,“ segir Óðinn og bætir því við að tveir menn frá RÚV séu í fullri vinnu við að aðstoða erlendar sjónvarpsstöðvar. Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttastjóri Stöðvar 2, tekur í sama streng. „Útsendingarbíllinn hjá okkur hefur verið upppantaður allan sólarhringinn frá því fyrir helgi. Við erum einnig að senda út talsvert af myndefni og aðstoða þetta fólk við að koma sér upp aðstöðu þarna fyrir austan,“ útskýrir Óskar. NBC, ITN, ABC, Sky News, BBC, Al Jaazera og ZDF eru í þessum ört stækkandi hópi erlendra fjölmiðla enda hefur eldgosið í Eyjafjallajökli lamað flugsamgöngur um allan heim. Búi Baldvinsson hjá framleiðslufyrirtækinu Kukli segist ekki muna eftir öðru eins en Kukl hefur séð um að aðstoða erlendu fréttastofurnar við beinar útsendingar. Askan úr Eyjafjallajökli sé farin að skyggja á bankahrunið. „Hér er búið að koma upp húsbíl, klippisvítu og það er mikil samkeppni um þjónustu,“ segir Búi og telur að nánast allur framleiðslubransinn hafi vinnu við að þjónusta erlendu fréttastöðvarnar. Þótt flugsamgöngur séu lamaðar beita fréttastöðvarnar öllum brögðum til að geta flutt fréttir af hamförunum. „Já, það voru einhverjir erlendir fréttamenn sem voru bara hérna í fríi en þar sem þeir eru hvort eð er innlyksa þá voru þeir bara fengnir til að sinna fréttaflutningnum. Svo veit ég að norrænu stöðvarnar hafa grafið upp einhverja fréttaritara í Ameríku og sent þá hingað til að geta sinnt þessu,“ segir Búi. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Laufey á landinu Lífið Fleiri fréttir Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Sjá meira