Beinir sviðsljósinu að London 13. júlí 2010 08:00 Einar Ingi Jóhannesson flytur til London. „
Þetta býður upp á marga möguleika, bæði að túra með hljómsveitum og að vinna í stórum leikhúsum,“ segir Einar Ingi Jóhannesson sem er á leiðinni til London í haust til að læra ljósahönnun fyrir leikhús. Hann er einn af fremstu ljósamönnum landsins og hefur verið duglegur að beina sviðsljósinu að íslenskum og erlendum tónlistarmönnum í gegnum árin, m.a. á Iceland Airwaves-hátíðinni. Núna vill hann víkka sjóndeildarhring sinn. „Ég er búinn að vinna mjög lengi í þessum bransa og hef alltaf ætlað að fara út. Mér hefur ekki gefist færi til þess fyrr en núna,“ segir Einar Ingi, sem er 27 ára. Námið heitir Theater Lightning Design og fer fram í hinum virta skóla Central School Of Speach and Drama. Um þriggja ára BA-nám er að ræða og kostar það skildinginn, eða um þrjár milljónir á ári. „Þetta er alveg rándýrt og þetta er ekki ódýrasti staðurinn til að búa á heldur en ég fæ eitthvað upp í skólagjöldin á námslánunum,“ segir Einar og bætir við: „Maður væri ekki að gera þetta nema maður ætli að gera þetta af alvöru. Það þýðir ekkert að fara út til að klúðra þessu.“ Einar segir að ljósamennska sé það skemmtilegasta sem hann geri. „Þú færð útrás fyrir að vera svolítið skapandi,“ segir hann um starfið. „Það er líka gaman að geta hjálpað góðum böndum í að koma sínu til skila. Það er eins með leikhúsin, að hjálpa til að koma skilaboðunum til skila. Eins og á tónleikum þá er ómetanlegt að slökkva húsljósin og þá tryllist allt. Þetta er ákveðið adrenalínkikk líka og sumir í þessu eru stjórnunar-“frík“,“ segir hann en gefur ekkert upp hvort hann sé í þeirra röðum eður ei.
Mest lesið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fleiri fréttir Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Sjá meira