Erlendur snýr aftur í nóvember 11. september 2010 08:00 Erlendur Sveinsson, sem Ingvar E. Sigurðsson túlkaði í kvikmyndinni Mýrinni, verður að nýju í aðalhlutverki í væntanlegri skáldsögu Arnaldar Indriðasonar.
Erlendur Sveinsson, einn ástsælasti rannsóknar-lögreglumaður Íslands, snýr aftur í nóvember í fjórtándu skáldsögu Arnaldar Indriðasonar. Erlendur hefur lítið komið við sögu í síðustu bókum Arnaldar og leyft aðstoðarmönnum sínum, þeim Elínborgu og Sigurði Óla, að eiga sviðið. Bók Arnaldar heitir Furðustrandir en höfundurinn sjálfur var fámáll þegar hann var spurður út í nafnið. „Ég get ekki gefið upp hvaðan nafnið Furðustrandir er komið; þá væri ég að uppljóstra of miklu um efni bókarinnar.“ Samkvæmt leitarforritinu google.com nefndi landneminn Eiríkur rauði strandlengju sem lá við Labrador og Nýfundnaland Furðustrandir. En nafnið má líka finna við Skagafjörð þar sem minnismerki um Jón Ósman, Ferjumanninn svokallaða, er að finna. „Ég hef reyndar lesið sögu Ferjumannsins sem Kristmundur Bjarnason skrifaði og það má vel vera að hún komi eitthvað við sögu.“ Arnaldur segir það hafa verið nauðsynlegt fyrir sig að gefa Erlendi smá frí og leyfa Elínborgu og Sigurði Óla að blómstra í tveimur síðustu bókum. Hann bendir jafnframt á að Harðskafi, Myrká, Svörtuloft og nú Furðustrandir tengist allar innbyrðis, þær gerast til að mynda allar á sama tíma, á tveggja til þriggja vikna tímabili haustið 2005. „En nú ætla ég alls ekki að segja meira, fólk verður bara að lesa bókina.“ Samkvæmt Arnalds-hefð kemur bókin út 1. nóvember en í fyrra bar þann dag upp á sunnudag. Að þessu sinni er hann hins vegar mánudagur þannig að bóksalar þurfa væntanlega ekki að keyra hana út eins og gert var í fyrra. - fgg
Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Lífið samstarf Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Lífið samstarf Ocasio-Cortez á lausu Lífið María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu Tíska og hönnun Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Tónlist Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Lífið Fleiri fréttir Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sjá meira