Bjóða upp á kaffi í stað súpu á Fiskideginum 4. ágúst 2010 11:00 Svanhildur Hólm og Logi Bergmann leyfa gestum að smakka fiskisúpuna sína. Almenningur fær ekki að njóta súpunnar í ár. „
Mér líður eins og föðurlandssvikara að vera ekki með súpu. Mér finnst eins og það sé nánast þegnskylda að gera þetta,“ segir Svanhildur Hólm, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Hún og eiginmaður hennar, sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann Eiðsson, ætla ekki að bjóða almenningi upp á fiskisúpu á föstudaginn, kvöldið fyrir Fiskidaginn mikla á Dalvík. Í staðinn ætla þau að bjóða gestum upp á kaffi, auk þess sem hljómsveitin Hvanndalsbræður kemur í heimsókn, eins og undanfarin ár. Og núna verður sjálfur Magni Ásgeirsson með þeim í för. Svanhildur og Logi eignuðust dótturina Hrafnhildi fyrir fjórum mánuðum og hún þarf á óskiptri athygli þeirra að halda í ár. „Hrafnhildur er bara fjögurra mánaða og þetta er alveg þriggja daga vinna,“ segir Svanhildur, sem fékk um eitt þúsund manns í heimsókn í fyrra. Þá eldaði hún um 150 lítra af fiskisúpu fyrir glorsoltna gestina. „Við höfum gert þetta síðan við keyptum okkur hús á Dalvík. Við komumst að þeirri niðurstöðu að ef við ætluðum einhvern tímann að sleppa þessu þá væri það árið sem við værum með fjögurra mánaða dóttur,“ segir hún. Svanhildur ætlar reyndar að elda fiskisúpu þennan dag en aðeins fyrir nána vini og ættingja. „Við verðum með gesti úti í garði sem ég hef venjulega séð minna af og aðallega þá til að ná í skottið á þeim til að láta þá brytja niður grænmetið. Núna ætla ég að gefa fólki að borða og tala við það,“ segir hún. „Ég læt mig jafnvel dreyma um að smakka fiskisúpu í öðrum húsum því það er fullt af fólki sem býr líka til fiskisúpu sem ég hef aldrei farið til.“ - fb
Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira