Íranskar frelsishetjur vilja sjá Sigur Rós 6. mars 2010 04:00 Dýrka Sigur Rós Íranskar frelsishetjur vilja sjá Sigur Rós á sviði á Íslandi. Hanna Björk Valsdóttir, sem dvaldi í Íran um árabil, segir indí-rokkara frá Íran eiga yfir höfði sér fangelsisvist ef þeir nást við iðju sína.
Í kúrdísku heimildarmyndinni Nobody Knows About the Persian Cats eftir Bahman Ghobadi kemur fram að aðalsöngvari einhverrar fremstu indí-sveitar Írans, Take it Easy Hospital, þráir ekkert heitar en að sjá Sigur Rós á sviði á Íslandi. Til að setja þetta í samhengi er rétt að geta þess að indí-rokk og önnur vestræn tónlist er stranglega bönnuð í klerkaríkinu og hljómsveitarmeðlimir þurfa að fara huldu höfði þegar þeir leika tónlist sína á opinberum vettvangi. Hanna Björk Valsdóttir kvikmyndagerðarmaður vann með leikstjóranum Bahman í Íran þegar hún var þar fyrir nokkrum árum. Hún segir hljómsveitir á borð við Take it Easy Hospital vera hálfgerðar frelsishetjur í landinu. Þær berjist gegn ríkjandi valdakerfi með tónlist sinni og hafi jafnvel setið í fangelsi fyrir list sína. „Tónleikar þessara sveita fara fram á mjög leynilegum stöðum enda eiga þær yfir höfði sér fangelsisvist ef yfirvöld hafa hendur í hári þeirra, segir Hanna. Nobody Knows About the Persian Cats var frumsýnd á Cannes-hátíðinni í fyrra og fékk mjög góð viðbrögð. Bahman Ghobadi hefur hins vegar ekki mátt snúa aftur til föðurlands síns því myndin var gerð í óþökk íranskra yfirvalda.- fgg
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira