Fleiri umsóknir en í síðasta Idoli 12. febrúar 2010 06:00 Simmi og Jói fengu á fjórða hundrað umsóknir þegar þeir auglýstu eftir starfsfólki á Hamborgarafabrikkuna. fréttablaðið/valli „
Þetta voru engar ruglumsóknir. Við fengum góð viðbrögð frá alvörufólki,“ segir sjónvarpsmaðurinn og verðandi veitingamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson. Félagarnir Sigmar og Jóhannes Ásbjörnsson, Simmi og Jói, stefna á að opna Hamborgarafabrikkuna í mars og auglýstu nýlega eftir starfsfólki. Sigmar segir viðbrögðin hafa verið vægast sagt góð og að fleiri hafi sótt um en mættu í síðustu Idol-áheyrnarprufur. „0,1% þjóðarinnar sótti um hjá okkur og einn útlendingur,“ segir hann og útskýrir nánar: „320 manns sóttu um í sirka 20 störf. Við vorum í fimm daga að fara í gegnum umsóknirnar og loksins núna erum við að ná að svara öllum sem við viljum fá í viðtal.“ Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu hafa myndbandsupptökuvélar fylgt Simma og Jóa í gegnum undirbúning opnunar Hamborgarafabrikkunnar. Úr verður raunveruleikaþáttur sem sýndur verður á Stöð 2 í vor. Þeir sem hafa verið boðaðir í starfsviðtal þurfa að þrá starfið að sögn Simma, þar sem myndavélarnar taka á móti þeim. „Við erum hugsanlega að fara að stilla upp áheyrnarprufum,“ segir hann í léttum dúr. „Við boðum fólk að öllum líkindum á Loftleiðir í viðtal.“ Þegar Simmi sleppir orðinu heyrist í Jóa fyrir aftan: „Við erum samt ekki að fara að sýna frá því sem þau segja í atvinnuviðtalinu.“ Simmi segir fjölbreytta flóru fólks hafa sótt um og það er kannski til marks um ástandið í þjóðfélaginu að nokkrir viðskiptafræðingar eru á meðal umsækjenda. „Þetta er fólk sem var kannski að vinna á veitingastað fyrir átta árum síðan,“ segir hann. „Svo sótti fólk um sem er að vinna annars staðar í dag og vill einfaldlega breyta til.“ - afb
Mest lesið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira