Ver sig gegn fljúgandi tónlistarnemum 20. maí 2010 15:00 Saga verður með uppistand á Prikinu í kvöld klukkan 21.30 ásamt Uglu Egilsdóttur og Halldóri Halldórssyni. Þar mun hún halda uppi gleðinni með því að segja ýkjusögur. Fréttablaðið/GVA
Saga Garðarsdóttir leiklistarnemi hefur sinn sérstaka stíl. Henni þykir gaman að vera búningaleg og þverröndótt þykir henni fallegt. „Svo klæðist ég öllu því sem vinkonur mínar prjóna á mig eða gefa mér," segir hún en tískuverslanir forðast hún út af verðlaginu. Heldur kýs hún Tiger og Rúmfatalagerinn. Uppáhaldsflíkin um þessar mundir er til dæmis bleikur hjólahjálmur sem elskulegur kærasti Sögu gaf henni á dögunum. „Hann veitir mér öryggistilfinningu því án hans er ég stöðugt hrædd um að reka mig upp undir eitthvað eða fá hamar í hausinn. Ég læri líka í svo óöruggu vinnuumhverfi af því leiklistarskólinn er að hruni kominn og hjálmur í raun bara hluti af grunnöryggisbúnaði nemenda. Þannig verjum við leiklistarnemarnir okkur gegn tónlistarnemum sem stundum falla bjargarlausir ofan af annarri hæðinni," segir Saga glettin og bætir við: „Svo hefur Hjálmar rektor líka lýst því yfir að þeir nemendur sem haldi nafni hans á lofti með því að ganga með hjálm dags daglega fái meira konfekt á útskrift en aðrir. Þetta fyrirkomulag hentar mér ágætlega því ég tek allri gagnrýni betur með hjálm því hann er nokkurs konar brynja sálarlífs míns," segir hún og hlær. Reyndar er Saga að grínast og gengur ekki með hjálminn dags daglega þótt hún noti hann mikið við hjólreiðar. Henni þykir enda gaman að segja ýkjusögur líkt og hún mun gera í kvöld klukkan 21.30 á Prikinu. Þar verður hún með gamansamt uppistand ásamt vinkonu sinni Uglu Egilsdóttur og Halldóri Halldórssyni. solveig@frettabladid.is Nánar um uppistandið á Prikinu hér á Facebook.
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira