Stafrænn Hákon: þrjár stjörnur 11. maí 2010 11:00 Sanitas er áttunda plata Stafræns Hákons í fullri lengd.
Eitt skref enn í þróuninniTónlist *** Sanitas Stafrænn HákonSanitas er áttunda plata Stafræns Hákons í fullri lengd, en sú fyrsta, Eignast jeppa, kom út árið 2001. Auk þess hefur hann sent frá sér að minnsta kosti sjö ep-plötur þannig að dugnaðinn vantar ekki. Skemmtileg nöfn á plötum og lögum eru eitt af einkennum Stafræns. Skvettir edik á ref, Prjónar húmmus og Sprengir ílát eru allt plötutitlar og á meðal laga á Sanitas eru: Minning um deig og Val Kilmer.Stafrænn Hákon er hugarfóstur Ólafs Josephssonar, en á Sanitas koma margir aðrir listamenn við sögu. Fjögur laganna eru samin í samvinnu við Samuel White sem hefur unnið með Ólafi á síðustu plötum. Daniel Lovegrove spilar á trommur, bassa og fleiri hljóðfæri og Magnús Freyr Gíslason og Minco Eggersman semja texta og syngja, auk þess sem fleiri hljóðfæraleikarar koma við sögu í einstaka lögum.Í upphafi ferilsins var tónlist Stafræns Hákons tilraunakenndur og stemningsfullur samruni raftónlistar og post-rokks. Í seinni tíð hefur hann verið að færa sig nær hefðbundnari lagasmíðum og Sanitas er indírokkplata þar sem skiptast á sungin lög og ósungin. Mörg þessara laga eru stórfín, til dæmis hið kraftmikla Emmer Green sem einkennist af flottum trommuleik, grípandi laglínu og áhrifamiklum gítardrifnum millikafla. Það er sungið af Magnúsi Frey. Ratio 2:3 (at least) er annað öflugt lag, en ólíkt. Það byggist rólega upp í ákveðinn hápunkt og svo fjarar það rólega út. Í gegnum allt er svo þægileg söngmelódía Minco Eggersman. Val Kilmer er líka flott orkumikið og melódískt instrúmentallag.Hljómurinn á plötunni er flottur og öll vinna á henni er fyrsta flokks. Hins vegar finnst mér platan ekki alveg ná að halda athyglinni út í gegn. Inn á milli góðu laganna eru síðri stykki og of mörg laganna eru of keimlík. Á heildina litið má segja að þessi áttunda platan Stafræns Hákons sé enn eitt skrefið í þróun hans frá sveimi yfir í rokk. Hún er að mörgu leyti vel heppnuð. Frábær þegar best lætur, en síðri inn á milli.Trausti JúlíussonNiðurstaða: Þó að lögin séu svolítið misgóð sýnir Stafrænn Hákon á Sanitas að hann getur vel búið til rokk sem virkar.
Mest lesið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Lífið samstarf Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Fleiri fréttir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Sjá meira