Hrói höttur spennir bogann 13. maí 2010 06:00 Russell Crowe er hinn nýi Hrói höttur.
Hrói höttur er eflaust einhver þekktasta persóna breskrar bókmenntasögu. Þessi góðhjartaði riddari Sherwood-skógar í Nottinghamskíri hefur oft og mörgum sinnum ratað á hvíta tjaldið enda hefur sagan af honum allt það sem prýðir góða kvikmynd: ást, peninga, völd og… boga. Ridley Scott og Russell Crowe eru á kunnuglegum slóðum í nýjustu kvikmyndinni um Hróa hött. Þar berst Hrói bókstaflega við hlið Ríkharðs Ljónshjarta gegn frönsku innrásarliði. Þegar Ríkharður deyr og Hrói snýr aftur á heimaslóðir í Nottingham kemst hann að því að hinn illi fógeti kúgar allt sem hann kemst í tæri við. Hróa er slétt sama en þegar hann verður ástfanginn af hinni góðhjörtuðu Marion ákveður hann að leggja henni lið gegn kúgunaröflunum. Auk Crowe fara þau Cate Blanchett og Max von Sydow með stór hlutverk í myndinni sem verður frumsýnd í vikunni. Hróarnir í gegnum árinDouglas Fairbanks árið 1922.Douglas Fairbanks er fyrsti Hrói höttur hvíta tjaldsins en það var árið 1922 sem hann tróð sér í níðþröngar sokkabuxur.Söguþráðurinn var kunnuglegur: Ríkharður ljónshjarta heldur í þriðju krossferðina til landsins helga og skilur völdin eftir í höndum bróður síns Jóhanns landlausa. Sá er ansi varasamur náungi, byrjar að kúga hina fátæku til að borga undir gjálífi sitt.Eini maðurinn sem virðist geta staðið upp í hárinu á honum er jarlinn af Huntington, betur þekktur sem Hrói Höttur.Sean Connery árið 1976.Sean Connery vakti Hróa upp frá værum blundi árið 1976 þegar hann lék heldri manna útgáfu af konungi þjófanna.Í Robin og Marion snýr Hrói heim til Sherwood eftir tuttugu ár í krossferðunum og hyggst vinna ástir Marion á ný. Hún er hins vegar orðin nunna.Erroll Flynn árið 1938.Árið 1938 réðst Hollywood í gerð nýrrar kvikmyndar um Hróa hött og að þessu sinni var það hjartaknúsarinn Erroll Flynn sem reið um skóglendi Englands.Almennt er talið að Flynn sé besti Hrói fyrr og síðar en kvikmyndin segir frá því þegar Hrói kemst á snoðir um að hinn illi bróðir Ríkharðs ljónshjarta, Jóhann, ætli að hrifsa til sín völdin.Kevin Costner árið 1991.Kevin Costner mætti með bogann til Nottingham í hasarmyndaútgáfu frá árinu 1991.Í þeirri mynd snýr Hrói líka aftur frá krossferðunum ásamt Azeem og kemst að því að fógetinn frá Nottingham hefur niðurlægt fjölskyldu hans, hrifsað æskuást hans til sín og fer fremur létt með að kúga þá sem minna mega sín.freyrgigja@frettabladidi.is
Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Sjá meira