Jón Gnarr vill leysa erfið mál með gleði Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. maí 2010 20:55 Jón Gnarr segir að Besti flokkurinn ætli ekki að bjóða fram annarsstaðar en í Reykjavik. Mynd/ Vilhelm.
Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, segist taka málefni borgarinnar, á borð við skattamál og samgöngumál, alvarlega. Það sé vel hægt að leysa mál með gleði þó þau séu alvarleg. „Við tökum þau mál mjög alvarlega og hugleiðum þau mjög vel. Það er fullt af erfiðum málum sem bíða úrlausnar. Við erum alveg sannfærðir um það að þó að mál séu erfið að þá má leysa þau með gleði," sagði Jón Gnarr í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Jón segir jafnframt að Besti flokkurinn stefni að því að finna leiðir til hagræðingar og hann vill lækka útsvar Reykvíkinga. Jón segir að Besti flokkurinn stefni ekki að frekari framboðum að sinni. „Við ætlum að klára þetta verkefni fyrst, áður en við förum að taka að okkur fleiri. Þetta er nú alveg nógu stórt verkefni," segir Jón. Hann segir því að ekki verði boðið fram í fleiri sveitarfélögum í vor þótt á tímabili hafi verið stefnt að framboði í Kópavogi. Jón Gnarr stefnir að því að kynna fullmannaðan og kynbættan lista, eins og hann orðar það, á næstu dögum. „Við erum búin að fjölga konum inni á listanum og munum tilkynna það á næstu dögum hverjar þær eru og hvar á lista," segir Jón. Jón segir að Besti flokkurinn standi fast við þau stefnumál sín að fá ísbjörn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, íkorna í Hljómskálagarðinn og froska á Reykjavíkurtjörn. „Okkur langar þetta og ég held að það megi alveg leysa svona mál ef fólk hittist og talar saman," segir Jón, aðspurður hvort það sé verkefni borgarstjórnar að fást um þessi mál. Jón segir að Besti flokkurinn stefni að því að ná 10 mönnum inn í borgarstjórn. Það þýðir hreinn meirihluti.
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent Fleiri fréttir Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Sjá meira