Lífið

Múm og 101-elítan í Kraká

Múm ásamt hópi íslenskra tónlistarmanna sem spilaði með þeim á tónleikunum. Á myndina vantar Jóhann Jóhannsson.
Múm ásamt hópi íslenskra tónlistarmanna sem spilaði með þeim á tónleikunum. Á myndina vantar Jóhann Jóhannsson.
Hljómsveitin múm spilaði á einni stærstu tónlistarhátíð Póllands, Sacrum Profanum, í Kraká um síðustu helgi ásamt hópi íslenskra tónlistarmanna. Þrjú þúsund manns voru í salnum og voru tónleikarnir teknir upp. Þeir þóttu heppnast mjög vel enda verða þeir gefnir út á mynddiski á næsta ári.

„Spiluðum í tvo og hálfan tíma fyrir framan þrjú þúsund manns og þetta var mjög gaman,“ segir Örvar í múm. Sannkölluð elíta tónlistarmanna, að stórum hluta úr 101-Reykjavík, steig einnig á svið, þar á meðal hljómsveitin Amiina, Högni Egilsson úr Hjaltalín, Benedikt Hermann Hermansson, Jóhann Jóhannsson, Mugison, Sindri úr Seabear, Gyða Valtýsdóttir og pólski útvarpskórinn sem Daníel Bjarnason stjórnaði.

Tónleikarnir voru haldnir undir yfirskriftinni „múm og vinir þeirra“. Eftirpartí var síðan haldið að þeim loknum og þar tróðu upp stuðboltarnir í FM Belfast. -fb





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.