Fótbolti

Domenech: Anelka neitaði að biðjast afsökunar

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Raymond Domenech, landsliðsþjálfari Frakka.
Raymond Domenech, landsliðsþjálfari Frakka.
Raymond Domenech, landsliðsþjálfari Frakka, segir að framherjinn Nicolas Anelka hafa ekki viljað biðjast fyrirgefningar eftir orðastríð þeirra félaga fyrr í vikunni. Anelka lét þjálfarann heyra það í hálfleik þegar Frakkar mættu Mexico. Þjálfarinn segist hafa gefið leikmanninum tækifæri á að biðjast afsökunar en Anelka vildi það ekki og var svo sendur heim í kjölfarið. ,,Ég ræddi aftur við hann og gaf honum möguleika á því að biðjast afsökunar eftir það sem gerðist," sagði Domenech. ,,En það var eitthvað sem hann var ekki tilbúinn að gera," bætti Domenech við. Allt er í lausu lofti hjá liðinu en nú er framkvæmdastjóri Frakka hættur störfum og farinn heim sem og leikmenn liðsins neita að æfa eftir rifrildi á æfingarsvæðinu. Franska landsliðið verður að ná sigri gegn Suður-Afríku á þriðjudag til að komast áfram í 16-liða úrslitin á HM þar sem liðið er einungis með eitt stig eftir tvo leiki í A-riðli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×