Lífið

Ingibjörg Egils aðstoðar Kalla Berndsen

Ingibjörg Egilsdóttir aðstoðar Karl Berndsen í nýrri þáttaröð af Nýju útliti.
Ingibjörg Egilsdóttir aðstoðar Karl Berndsen í nýrri þáttaröð af Nýju útliti.

„Ingibjörg hefur sterkar skoðanir sem ég kann vel að meta,“ segir útlitssérfræðingurinn Karl Berndsen.

Karl nýtur liðsinnis fegurðardrottningar­innar Ingibjargar Egilsdóttur í þáttunum Nýtt útlit sem hefjast á ný í næstu viku. Ísak Freyr Helgason aðstoðaði Karl í fyrstu þáttaröðinni og vakti mikla athygli. Karl segir að hann hafi þurft að leyfa Ísaki að fljúga úr hreiðrinu og bætir við að hann hafi þurft að fá almennilega stelpu í hans stað.

„Ég þurfti að fara alla leið í Miss Universe til að finna hana,“ segir hann og vísar í að Ingibjörg keppti í Miss Universe-fegurðarsamkeppninni í fyrra. „Hún er svo fögur. Öllum hlýtur að finnast gaman að horfa á eitthvað fagurt.“

Skjár einn hóf nýlega að rukka fyrir áskrift, en síðasta þáttaröð Karls var í opinni dagskrá. Hann óttast ekki að það hafi stór áhrif á áhorfið og býst við að ná til íslensku kvenþjóðarinnar. „Ef konur tíma ekki að borga 500 kall á viku fyrir að njóta mín í klukkutíma á viku þá veit ég ekki hvað,“ segir hann í léttum dúr.

„Þetta er ekki nema hálfur sígarettupakki á viku. Það finnst öllum erfitt að borga fyrir hlutina, en í staðinn fær fólk eitthvað sem gaman er að.“

Nýtt útlit hefur göngu sína á þriðjudaginn og í fyrsta þættinum heimsækir Karl konur sem hann tók í gegn fyrir ári. „Það var mjög áhugavert að hitta þær aftur,“ segir hann.

„Margar hafa breyst ansi mikið, en mér sýnist flestar vera á góðri leið.“ - afb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.