Boðið til Kaupmannahafnar 24. september 2010 07:00 Árni Hlöðversson úr hljómsveitinni FM Belfast og leikstjóri Backyard, Árni Sveinsson. fréttablaðið/valli
Myndin Backyard sem var frumsýnd á opnunarkvöldi Bíós Paradísar í síðustu viku verður sýnd á heimildarmyndahátíðinni CPH:DOX í Kaupmannahöfn í nóvember. „Þetta er æðislegt. Þetta er hátíð sem leggur svolitla áherslu á tónlist í kvikmyndum og tónlistartengdar myndir. Þetta er hátíð sem er svolítið að banka á A-listann,“ segir leikstjórinn Árni Sveinsson. Backyard keppir í flokknum Sound & Vision en sigurvegari í fyrra var Frakkinn Vincent Moon sem verður gestur RIFF-hátíðarinnar. Árið 2008 vann í sama flokki mynd um rokksveitina Anvil sem hefur vakið mikla athygli. Backyard fjallar um nokkrar íslenskar hljómsveitir sem tengjast vináttuböndum og starfa mikið saman, þar á meðal FM Belfast, Hjaltalín, múm, Retro Stefson, Reykjavík!, Sing Fang og Borko. Nokkrar þeirra munu ferðast til Kaupmannahafnar í tengslum við hátíðina og halda þar tónleika. Árni er mjög ánægður með viðtökurnar við Backyard og segir þær framar vonum. „Það er ekkert sjálfgefið fyrir svona litla heimildarmynd að opna svona bíó (Bíó Paradís) og fá að vera með sýningar þar. Þannig að við erum bara hæstánægð.“ Hlé verður nú gert á sýningum Backyard vegna RIFF-hátíðarinnar en að henni lokinni halda sýningar áfram, meðal annars á Airwaves-hátíðinni. Í tengslum við þær sýningar verða haldnar uppákomur þar sem hljómsveitir úr myndinni stíga á svið. - fb
Mest lesið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Fleiri fréttir Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Sjá meira