Fylgdist vel með gengi múm 25. september 2010 06:00 Gyða Valtýsdóttir heldur tónleika ásamt Julian Sartorius í Norðurpólnum í kvöld.
Sellóleikarinn Gyða Valtýsdóttir, sem gerði garðinn frægan með hljómsveitinni múm hér á árum áður, heldur tónleika í Norðurpólnum í kvöld ásamt slagverksleikaranum Julian Sartorius. Þau hafa spilað saman sem tvíeyki í tæpt ár og eru þetta fyrstu tónleikar þeirra hér á landi. „Ég var í múm á unglingsaldri en hætti í sveitinni til að einbeita mér að náminu í Listaháskóla Íslands. Eftir útskrift stakk ég svo af til Rússlands og var þar í einn vetur. Ég hafði verið að spila mikið af rússneskri tónlist á þessum tíma og í gegnum það vaknaði áhugi minn á landinu,“ útskýrir Gyða og bætir við að hún hafi svo endað í borginni Basil í Sviss þar sem hún hóf meistaranám í klassískum sellóleik. Aðspurð segist Gyða hafa fylgst nokkuð vel með gengi múm í gegnum tíðina, en tvíburasystir hennar söng áfram með sveitinni eftir brotthvarf Gyðu. „Mér var reyndar boðið að spila með hljómsveitinni í Kraká fyrir stuttu og það fannst mér mjög gaman. Það var skemmtilegt að sjá hvert þau voru komin heilum átta árum síðar.“ Gyða og Sartorius leika blöndu af spunatónlist og sönglögum sem þau hafa fundið á ferðum sínum og segir Gyða mikið frelsi felast í því að leika spuna. „Spuni er oft rangtúlkaður og vanmetinn og ég skil vel hvers vegna,“ segir Gyða „En spuni er þó ávallt til staðar í allri sköpun, þá flæðir óhindrað upp úr djúpum undirmeðvitundarinnar án ritskoðunar heilans.“ Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 20 og er miðaverð 1.000 krónur. - sm
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira