Á eftir að sakna matarins hjá mömmu 25. september 2010 06:00 Ingólfur Þórarinsson hefur fest kaup á sinni fyrstu íbúð í Reykjavík og yfirgefur þar með heimabæ sinn Selfoss í bili.Fréttablaðið/stefán „
Þá er maður alfarið farinn að skjóta rótum í höfuðborginni,“ segir Ingólfur Þórarinsson, söngvari, leikari og fótboltamaður en hann festi nýverið kaup á sinni fyrstu íbúð. Íbúðin er í Gerðahverfi í Reykjavík og ætlar kappinn því endanlega að yfirgefa heimabæ sinn Selfoss. Íbúðina fær söngvarinn afhenta í byrjun desember og lofar hann innflutningspartýi fram í febrúar. „Ég hef alltaf verið með annan fótinn á Selfossi hjá mömmu en nú er kominn tími til að standa á eigin fótum,“ segir Ingólfur, eða Ingó eins og hann jafnan er kallaður, og viðurkennir að þetta sé stórt fullorðinsskref fyrir sig. „Maður á nú eftir að sakna Selfoss en ég verð duglegur að keyra yfir heiðina í heimsókn,“ segir Ingó og bætir við að matseldin eigi eftir að verða stærsta vandamálið í heimilishaldinu til að byrja með. „Ég get alveg viðukennt það að ég er ekki mikill kokkur og finnst eins og flestum strákum maturinn hennar mömmu bestur,“ segir Ingó og bætir við að uppskriftabók sé efst á óska-listanum yfir innflutningsgjafir. „Það eina sem ég kann er að sjóða pulsur svo allar matarráðleggingar eru vel þegnar.“ Þrátt fyrir að vera að yfirgefa Selfoss er Ingólfur staðráðinn í að halda áfram í fótboltanum en Selfoss féll á dögunum niður í fyrstu deild. „Ég ætla pottþétt að spila fótbolta næsta sumar en ég veit ekki alveg enn þá með hvaða liði. Það á eftir að koma í ljós,“ segir Ingó að lokum. - áp
Mest lesið Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Lífið Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Lífið Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið Lífið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Lífið Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Lífið Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Lífið Stefnir með sjö fjölskyldum aftur á Unglingalandsmótið Lífið samstarf Myndaveisla: Götubitinn í Hljómskálagarðinum Lífið samstarf Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Lífið „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Sjá meira